Hoplaxar á ferð

Hoplaxar í Elliðaánum. Sjá slóð á vefsíðu að neðan....
Nú þegar kuldakastið virðist vera að hverfa og ís að hörfa af ám og vötnum á sama tíma og farfuglum fjölgar með hverjum deginum, leitar hugurinn undir yfirborðið. Þar leynast birtingarnir og spurning er hversu lengi verða þeir í ánum? Það fer eftir árferði og sama gildir um hoplaxa sem eru enn í ánum í stórum torfum.
Jón Valgeirsson fer fyrir veiðifélaginu Öngvir menn og hann bauð okkur að skoða myndir af hoplöxum í Elliðaánum sem birtast á vefsíðu klúbbsins, http://aungvir.123.is/ Gaf hann leyfi fyrir því að við notuðum mynd eða myndir. Takk fyrir það félagar, þetta eru flottar myndir og menn geta velt fyrir sér hvernig vistin er í ánni heilan vetur með ekkert fyrir stafni annað en að bíða vors. Laxveiðiárnar eru nú fullar af þessum fiskum og þó að kuldakasti hafi slegið niður nú í lok vetrar þá hefur veturinn verið í aðalatriðum mildur og þá er væntanlega möguleiki á því að fleiri hoplaxar en ella lifi vetrardvölina af, komist til sjávar og gangi aftur í árnar. Myndir af hoplöxum að vori minnir okkur líka á, að þó að menn einblíni núna á silung, þá styttist óðum í laxavertíðina.
