Geitungar og ekki geitungar!
Ekki skrýtið að menn hafi haldið þetta vera geitunga!
Það hefur vakið nokkra athygli að sjóbleikjur í Skagafirði éti holugeitunga og það í stórum mæli. Þetta er samt sem áður mjög orðum aukið. Það sem menn héldu, kannski eðlilega, að væru holugeitungar, voru í raun voflugupúpur.
Þetta kom allt upp á í versðskrá SVFK, sem er m.a. með Hrollleifsdalsá á leigu. Hrollan er að upplagi sjóbleikjuá sem hefur dalað sem slík, en hefur haldið haus sem veiðiá vegna þess að urriðar í Sléttuhlíðarvatni sem ganga í ána til hrygningar, eru með betri skilyrði en áður.
Glæsilegur blandaður afli úr Hrollu s.l. sumar, sjóbleikjur, staðbundnir urriðar og lax.
Menn sem voru að veiða í fyrra veiddu nokkrar bleikjur sem voru úttroðnar af æti og ekki var betur séð en að um geitungamatseðil væri að ræða. Arnbjörn Arnbjörnsson sem fór fyrir hollinu sagði að mikið hefði verið um geitunga í dalnum og meira en áður, þó hefði hans hópur verið þarna í tuttugu ár og aldrei séð annað eins.
Hefðbundra púpur veiddar andstreymis virkuðu best.
“Við vorum alltaf að stíga ofan á þúfur og geitungar flugu frá þeim. Þetta var meira en en við höfðum séð. Við opnuðum nokkrar blelikjur og þá kom í ljós að þær voru fullar af þessu. Við spurðum Erling Ólafsson skordýrafræðing hjá Náttúrufræðistofnun Íslands en hann sagði að þetta væru ekki geitungar heldur vorflugupúpur. Við vorum eiginlega sáttir með það, enda velti maður fyrir sér hvernig bleikjan væri að éta geitunga. Við höfum séð þá svona rétt snerta vatsnflötinn þegar þeir veiða og ég hef jafnvel verið að velta fyrir mér hvernig best sé að hnýta geitung sem tyllir sér á vatnið, ” sagð Arnbjörn í samtali við VoV.
Einn félaganna með flottan afla.
Vissulega lýtur út fyrir að innvolsið í bleikjunum sé geitungagums og við minnum á, að einu sinni skrifuðum við grein þar sem sagt var frá flugu/púpu Gylfa heitins Kristjánssonar, Beykis, að þar væri apað eftir geitungi. Málið er að holugeitungar hafa fest sig í sessi um land allt og eru til stófelldra leiðinda.

Eyfjörð okkar átti fótum fjör að launa í Laxá í Mývó og Einar Falur renndi sér einu sinni á rassinum ofan af bakkanum ofanvert við góðan hyl í Flekkudalsá, en truflaði í leiðinni holugeitungabú og flúði upp í bíl með sveiminn á eftir sér! Því miður segja margir sömu sögu og það er ekki einu sinni hægt að fara í berjamó lengur út af þessum helvítis kvikindum.
En Skagfirsku belikjurnar voru ekki að éta geitunga, því miður, vorflugupúpur voru á matseðlinum og greinilegt að Gylfi heitinn hitti naglann á höfuðið forðum þegar hann hnýtti Beyki. Hér að ofan getur að líta púpuna Beyki, sem er glettilega lík geitungi, en greinilega glettilega lík vorflugupúpu líka miðað við niðurstöðu skordýrafræðingsins.
