Íslensk fluguhjólahönnum á leið í útrás

Þau eru stílhrein fluguhjólin frá Fossdal.
Hugmyndin um íslenskt fluguveiðihjól byrjaði árið 2004 þegar Steingrímur Einarsson smíðaði fyrstu hjólin sér og sínum til skemmtunar. En þar með var boltinn byrjaður að rúlla og frá fyrsta degi hefur Steingrímur unnið þrotlaust að því að þróa og endurbæta hjólið. Fossadalur ehf var stofnað utan um framleiðsluna árið 2007 og síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og verkefninu vaxið fiskur um hrygg, en í dag framleiðir fyrirtækið línu af fluguveiðihjólum undir vörumerkinu Einarsson Fly Fishing.
Frá því snemma árs 2009 hefur Óskar Páll Sveinsson leiðsögumaður og lagahöfundur unnið með fyrirtækinu sem sölustjóri við að koma hjólinu á framfæri meðal Íslendinga og erlendra veiðimanna sem veiða hér á landi. " Ég kynntist hjólunum frá þeim félögum í Fossadal sumarið 2008 þegar ég sá þau í fyrsta skipti hjá Steingrími. Reyndar var það svo að við Steingrímur erum félagar frá gamalli tíð í tónlistinni og vissum því hver af öðrum. Það var því létt verk að endurnýja kynnin og skella sér með strákunum út í djúpu laugina.
Á Ísafirði hefur Fossadalur komið upp verksmiðju með tölvustýrðum CNC rennibekk og fræsivél. Með góðum undirbúningi, framúrskarandi hönnun og fullkomnum tækjabúnaði tekst Fossadal að framleiða hjól sem standast fullkomlega samanburð við það besta sem gerist í fluguveiðihjólum í heiminum í dag,” segir Óskar Páll.
Óskar greinir okkur frá því að markaðs- og kynningarherferð sé hafin og muni færast í aukana er á árið líður og ná hámarki næsta haust þegar nýtt og “byltingarkennt” fluguhjól verður kynnt. "Núna í haust fór ég að vinna sem sölustjóri hjá Fossadal og ætla ég að sjá um Íslenska markaðinn. Við leggjum uppúr því að veita bæði Íslenskum sem og erlendum veiðimönnum góða þjónustu og gott aðgengi að hjólunum. Hjólin verða til sölu í mörgum veiðihúsum í sumar og jafnframt í flestum betri fluguveiðibúðum á landinu. Einnig verður hægt að kaupa hjólin beint af verksmiðjunni á Ísafirði og í gegnum heimasíðuna okkar einarsson.com. Ef menn svo vilja þá er boðið uppá að hjólin séu merkt eigandanum með varanlegri laser merkingu, það ásamt þeirri staðreynd að þau eru hönnuð og smíðuð alfarið hér á landi gerir Einarsson hjólin að mjög svo eigulegum grip.“
Síðastliðið sumar gerði Fossadalur nokkur prufueintök af nýju hjóli. Búið er að vinna að hugmyndavinnu og þróun á þessu hjóli með aðstoð Tækniþróunarsjóðs og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Niðurstaðan er ný lína fluguveiðihjóla er byggir á áður óþekktri tækni í bremsuvirkni. Við nýtingu þessarar tækni hafa fluguveiðihjól í fyrsta skipti verið hönnuð með heildarvirkni stangveiðibúnaðar í huga. Sótt var um einkaleyfi fyrir hönnuninni s.l. vor og er niðurstaða alþjóðlegu einkaleyfastofnunarinnar sú að um einkaleyfishæfa hugmynd sé að ræða, að sögn Óskars Páls.
“Næsta frumgerð af hjólinu verður framleidd eftir áramót og fara þau í umfangsmiklar prufur n.k. vorog sumar, bætir Óskar Páll við. “Nýja hjólið kemur á markað undir lok næsta sumars og verður það stór áfangi hjá fyrirtækinu, enda um að ræða gríðarlega spennandi verkefni sem mun vekja athygli meðal fluguveiðimanna um allan heim,” segir Óskar enn fremur og reifar síðan betur markaðssókn utan landssteina: “Það var ljóst frá byrjun að markaðurinn fyrir hágæða fluguveiðihjól á Íslandi er of lítill til að standa undir rekstri fyrirtækis eins og Fossadals. Því hefur undirbúningur fyrir alþjóðlega markaðssetningu staðið yfir allt frá stofnun fyrirtækisins. Framleiðsla og markaðsstarf er allt unnið innan fyrirtækisins ásamt því að fjöldi áhugasamra innlendra og erlendra fluguveiðimanna hefur aðstoðað fyritækið við að kynna vörur þess. Vörumerkið Einarsson Fly Fishing er tilbúið og er ekkert því til fyrirstöðu að hefja útflutning á erlenda markaði. Fyrirtækið hefur markað sér stefnu í markaðssetningu erlendis og munu vörur þess vera markaðssettar undir vörumerkinu "Einarsson Fly Fishing" sem er skírskotun í Íslenskan uppruna þess, en áhersla verður lögð á Ísland í ímyndarsköpun þess á erlendri grundu. Þegar hefur farið fram undirbúningur í markaðssetningu á Norðurlöndunum og koma hjólin frá Einarsson Fly Fishing á markað þar snemma árs 2010.”
Svo mörg voru þau orð Óskars Páls Sveinssonar, en allt sem menn vilja kynna sér nánar era ð finna á vef fyrirtækisins, http://www.einarsson.com/ Litla myndin er af Eurovisionhetjunni Óskari Páli Sveinssyni með bolta birting úr vorveiði í Tungufljóti. Myndin er fengin að láni af vef SVFR.
