Hnúðlaxinn úr Skógá
Nettur kjaftur kvendýrsins?
Eins og fram hefur komið, og það oftar en einu sinni, þá veiddust all nokkrir bleiklaxar, eða hnúðlaxar, allt eftir því hvort menn vilja kalla þá, í íslenskum ám á nýliðinni vertíð. Við höfum birt myndir af tveimur þeirra, hér er sá þriðji og spurning hvort að þetta er hrygna númer tvö?
Mokveiðifélag Skagafjarðar stóð fyrir löndun á fyrstu hrygnunni sem borin eru kennsl á í íslenskri á, þegar klúbburinn fiskaði tæplega 3 punda ræfil upp úr Húseyjarkvísl í haust.
Enginn hnúður, ergó: Hrygna?
Fram hefur komið í umræðunni að hængar þessarar Kyrrahafstegundar sem var flutt í ár á Kólaskaga fyrir margt löngu, eru auðþekkjanlegir, þunnir, hressilega tenntir, bleikir og með mikinn krók og háan hnúð eða kamb fremst á bakinu. En hrygnurnar eru án hnúðs að mestu og eru taldar líkjast sjóbleikju, sérstaklega framan af sumri, en er líða tekur á haustið má öllum ljóst vera er berja fiskinn augum að engin sjóbleikja lítur þannig út.
Fiskurinn sem hér um ræðir veiddist í Skógá í September. Rob Sinclair dró dýrið að landi og tók myndirnar. Sendi þær til Ásgeirs Ásmundssonar sem lét okkur þær í té til birtingar. Þetta er ekki dæmigerður hnúðlaxahængur að hausti og stingum við uppá að hér sé komin önnur “kerla”. En hvað vitum við?
