Hjálmar Árnason veltir fyrir sér ótrúlegri frjósemi Flóku

Hjálmar Árnason er mikill aðdáandi Flóku, var í henni nýverið og veiddi vel. Hann segir: „Núna þegar Flóka í Borgarfirði nálgast 400 laxa á þrjár stangir á fimm vikum hljóta menn að pæla ögn í skýringum. Síðasta sumar var met og stefnir í að afli þessa sumars verði svipaður.“
Hjálmar heldur áfram: „Merkilegt við Flóku er sú staðreynd að menn hættu fyrir nokkrum árum að draga fyrir og létu ánni sjálfri eftir búskapinn. Síðan þá má segja að leiðin hafi bara legið upp á við. Þetta er umhugsunarefni í vatnsföllum á borð við Flóku. Í öðrum ám, s.s. Rangám, Skógá og Tungufljóti, eru aðstæður allt aðrar og hafbeitin grunnur ævintýranna þar.
Aftur að Flóku. Fleiri þættir hafa áhrif á velgengni hennar: Fiskgengd upp á fjall, netaupptakan í Hvítá og svo ekki síður að Flóka er að hluta til lindá, með langt vatnasvið, og þolir því betur en ýmsar aðrar ár langvarandi þurrka.

Á meðfylgjandi myndum má sjá Ingvar Hjálmarsson við Hjálmfoss í byrjun júlí (efri myndin) með tvo fallega tekna í glampandi sól á hitch. Fosshylurinn var sem oft áður bunkaður af fiski en tökufiskarnir liggja við útfallið á lygnunni vinstra megin á myndinni. Menn kasta uppí vikið við bergið og láta strauminn bera línuna að útfallinu. Og er gaman að sjá fiska skjótast á eftir agninu og negla sig á það. Ekki spillir að geta fylgst vel með allri baráttunni í lygnum hylnum.
Á hinni myndinni (þeirri neðri) hampar Ingvar fyrsta laxi sumarsins, teknum úr hinu rómaða Pokagljúfri, neðarlega í Flóku og afar gjöfult fyrri hluta sumars. Kv.Hjálmar Árnason.“
Þessar vangaveltur Hjálmars eru athyglisverðar. Önnur dæmi eru til í sama dúr, t.d. er mannshöndin ekkert að fikta við Haffjarðará, utan að sleppa aftur mörgum veiddum löxum, en samt er leiðin þar bara upp á við, ár eftir ár. Ýmsir leigutakar hafa sveigt inn á þá braut að árnar framleiði sjálfar sína laxa í stað þess að dæla í þær seiðum. Má nefna ár fyrir austan eins og Hofsá og Selá þar sem það eitt er gert að setja fullorðna laxa upp fyrir ólaxgenga fossa og láta þá sjá sjálfa um hrygningu og náttúruna um uppeldi. Fiskvegir hafa vissulega verið gerðir. Einnig má benda á Vatnsdalsá í Húnaþingi.
