Bjarni Júlíusson: Norðurá opnar með 13 löxum

Bjarni er með þetta allt á hreinu og segir hér félaga sínum Marinó Marinóssyni nákvæmlega hvert hann á að kasta.... (báðar myndir Heimir Óskarsson)
Það eru rétt ríflega tvær vikur þangað til að fyrstu köstin verða tekin í íslenskumlaxveiðiám sumarið 2009. 5.júní hefst veiði í Norðurá, Blöndu og Straumum. Sumarið hefur heldur betur haldið innreið sína síðustu daga og um helgina er væta í kortunum. Fyrrum var þessi dagur opnunardagur netaveiði í Hvítá í Borgarfirði og má því alveg reikna með því að lax sé farinn að kíkja í ósana í það minnsta. Bjarni Júlíusson spáir góðri opnun í Norðurá.

Jú, alltaf veiddist eitthvað í Hvítárnetin 20.mai, stundum lítið og stundum meira. Skiltið góða í Ferjukoti, „Nýr lax“ var sett upp og Garðar heitinn Svavarsson, þá kenndur við Kjötbúð Tómasar, var einsatklega laginn að næla í fyrstu „Hvítárlaxana“ sem voru að verðgildi og mikilvægi jafningjar humars og hreindýrakjöts í matvörubúðum nútímans.
...og hnýtir síðan flugu á tauminn, sallarólegur.
Seinni árin, eftir að netin voru keypt upp, hefur það alltaf gerst af og til að laxar hafa veiðst á stöng í Hvítá í mai þegar menn hafa verið að leita sér að sjóbirtingi í soðið. Á vef SVFR er frá því greint að tveir laxar hafi nýverið veiðst í snurvoð undan Suðurströndinni. Á vef Lax-ár eru einnig sögur af laxveiðum í söltum sjó, laxar í grásleppunetum víða, m.a. tveir 20 punda í Vopnafirði. Þetta er allt að koma.
Bjarni Júlíusson, fyrrum formaður SVFR, var óvenjulega spámannlega vaxinn með opnanir Norðurár á formannsárum sínum og í samtali við VoV í gær minntist hann þess að „aldrei hafi spár hans klikkað,“ eins og hann komst að orði. Spár hans voru þekktar fyrir að vera gersamega fram úr hófi bjartsýnar og þótti yfirleitt flestum nóg um fyrirganginn og tilætlunarseminnar í garð móður náttúru.

Fjölmiðlarnir hafa löngum haft brennandi áhuga á opnun Norðurár og ekki má missa af formanninum hnýta fyrstu fluguna á tauminn....eins og sjá má! Mynd Heimir Óskarsson.
En það var gaman að þessu engu að síður og til að spár Bjarna fái að lifa þó hann sé ekki lengur formaður, báðum við hann að spá fyrir okkur um opnun Norðurár föstudaginn 5.júní. Hann lét okkur bíða aðeins, sagðist þurfa fyrst að komast í gírinn og dreypa á sérstakri jurtablöndu með tesopa. En svo kom spáin, geriði svo vel lesendur: „Jæja nú er ég búinn að rýna aðeins fram í tímann. Mér sýnist það verði vætusamt í næstu viku og það komi líf og súrefni í ána. Það er stórstreymt 8. júní ef ég man rétt þannig að laxinn mun ganga í stækkandi straumi uppúr mánaðarmótum. Ætli það komi ekki 13 laxar á land í opnuninni, sem er heldur betra en undanfarin ár. Það hefur nú ekki verið beysið í opnunum sl. áratug og við verðum að fara allar götur aftur til 2001 til að finna sæmilega opnun.

Stuðningsfulltrúar við Norðurá? Þetta er frá opnuninni í fyrra. Oftast er vatnsmagnið glæsilegt, en síðan minnkar það hratt...Mynd Heimir Óskarsson.
En 13 laxar á land í ár er spáin. Sá fyrsti auðvitað á Brotinu. Svo held ég að við gömlu mennirnir, ég og Bjarni Ómar tökum sinn hvorn í Myrkhylsrennum og Laugarkvörn.“ Við þökkum Bjarna spámanni fyrir. Hann sendi okkur jafnframt töflu yfir opnanir all langt aftur í tímann og er fróðlegt að rýna í hana.

Fimm mínútur í sjö í fyrra og spennan orðin óbærileg.... (báðar myndir Heimir Óskarsson)
Þar rifjast t.d. upp að í fyrra veiddi stjórnin 6 laxaí opnun og árið áður 9 laxa. Hins vegar hefur gengið á ýmsu, t.d. veiddist enginn lax vorið 2005 og það þarf að fara allt aftur til 2001 til að finna opnun sem telst getur þokkaleg miðað við það sem áður gekk og gerðist, en þá veiddust 26 laxar, 43 vorið 1999.

Sumarið á milli, 2000 komu hins vegar aðeins 8 á land þannig að þetta er á alla vegu. Og ekki má gleyma því að slök opnun í fyrra kom ekki í veg fyrir hrikalega metveiðitölu áður en upp var staðið. En hér er taflan sem Bjarni sendi okkur og er athyglisvert að sjá að 2005 var ekki eina núll-árið.....
...og sumir þoldu ekki álagið og óðu útí!
1972-21, 1973-42, 1974-53, 1975-36, 1976-32, 1977-58, 1979-2, 1980-31, 1981-41, 1982-3, 1983-2, 1984-27, 1985-4, 1986-29, 1987-44, 1988-36, 1989-0, 1990-29, 1991-45, 1992-17, 1993-4, 1994-58, 1995-6, 1996-24, 1997-7, 1998-16, 1999-43, 2000-8, 2001-26, 2002-4, 2003-10, 2004-4, 2005-0, 2006-3, 2007-9, 2008-6, 2009-?
Þess má geta, að ef menn eru komnir með kláða í lófana, að á vef SVFR kemur fram að júníveiðileyfi séu uppseld í Norðurá 1 og í Straumum, en á vefjum Agnsins og Lax-ár sést að eitthvert hrafl er enn laust af stöngum á aðalsvæði Blöndu í júní, en hún hefur yfirleitt verið að opna mjög líflega síðustu sumur.
