NASF sendir borgarstjóra mótmælabréf vegna hesthúsanna

Laxinn svífur yfir brún Sjávarfoss. Enn gengur lax í Elliðaárnar þó að þær fái sjaldnast að njóta vafans þegar uppbygging mannskeppnunnar er annars vegar. Enda hefur margt á ánum dunið í gegnum tíðina. Mynd Heimir Óskarsson.
Eins og fram hefur komið hefur borgarstjórn ákveðið að leyfa byggingu hesthúsabyggðar nærri veiðistaðnum Heyvaði í Elliðaánum þrátt fyrir mótmæli VMSt, ráðgjafahóps um Elliðaárnar, Umhverfisráð borgarinnar og Stangaveiðifélags Reykjavíkur auk fleiri aðila. Eru þessir aðilar undrandi á afgreiðslunni og nú hefur NASF tekið undir með þeim í bréfi til borgarstjóra.
Orri Vigfússon stefndi saman stjórnarfundi NASF í vikubyrjun vegan málsins og þar var eftirfarandi bréf ritað og hefur verið sent til borgarstjóra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, sem sagði m.a. í viðtali í útvarpsþætti Bubba Morthens í vikunni að “færustu sérfræðingar” borgarinnar teldu lífríki Elliðaána ekki ógnað þrátt fyrir hrossakofabyggingana. En bréfið frá Orra og félögum er svohljóðandi:
“Á fundi NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna í Reykjavík hinn 16. mars komu fram áhyggjur varðandi fyrirhugaða hesthúsabyggð í Víðidal nálægt Elliðaánum í andstöðu við umhverfisráð borgarinnar, Veiðimálastofnun, ráðgjafahóp um Elliðaárnar og Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Tók fundurinn undir með þessum aðilum og hvetur borgaryfirvöld til að endurskoða afstöðu sína og setja fram nýja áætlun til að endurreisa lífríki Elliðaánna og villta laxins í þessu fyrrum djásni höfuðborgarinnar.
Sérfræðingar NASF hafa fylgst með laxastofnum í Elliðaánum um árabil og telja að ekki megi bíða með margvíslegar aðgerðir til að styrkja þá. Borgaryfirvöldum hefur ítrekað verið bent á margvíslegar hættur sem steðjuðu að laxastofnum ánna og má m.a. benda á erindi NASF til Heilbrigðis- og umhverfisnefndar Reykjavíkur frá 9. desember, 1999. Fyrirhuguð hesthúsabyggð er með öllu óásættanleg og hefur í för með sér óafturkræfar afleiðingar. Laxinn er óaðskiljanlegur hluti af vistkerfi Elliðaánna en hesturinn er aðeins gestur í dalnum!
Vaxandi búseta og umsvif við árnar hafa alvarlegar breytingar í för með sér fyrir viskerfi þeirra. Við þeim verður að bregðast á viðeigandi hátt og er brýnt að gerð verði heildstæð verndaráætlun fyrir Elliðaárnar sem taki yfir allt vatnasvið þeirra.
Við leggjum jafnframt til að borgaryfirvöld endurmeti vistfræðileg og efnahagsleg rök fyrir áætlunum sínum við Elliðaárnar. Við leggjum áherslu á umhverfisverðmæti Elliðaánna - en óspillt náttúra verður sífellt verðmætari, sérstaklega í nálægð þéttbýlissvæða.
Að endingu óskum við eftir fundi með borgarstjóra hið allra fyrsta.”
Þessi innkoma NASF sýnir að það er vaxandi þungi gegn hesthúsunum en menn hljóta þó að spyrja sig hvort að ekki sé of seint í rassinn gripið. “Yfirvöld” eru að alla jafna ekki mikið fyrir að bakka með ákvarðanir sem teknar hafa verið, enda oftast einhverjir hagsmunir að baki. Eins og t.d. þegar Eyjabökkum var þyrmt. Það var einungis vegan þess að sú virkjun taldist ekki hagkvæm lengur. Þá var vent sínu kvæði í kross og Jöklu, Dimmugljúfrum og Lagarfljóti fórnað í staðinn. En við sjáum hvað setur.
