Eins og fram hefur komið hefur borgarstjórn ákveðið að leyfa byggingu hesthúsabyggðar nærri veiðistaðnum Heyvaði í Elliðaánum þrátt fyrir mótmæli VMSt, ráðgjafahóps um Elliðaárnar, Umhverfisráð borgarinnar og SVFR auk fleiri aðila. Nú hefur NASF tekið undir með þeim í bréfi til borgarstjóra.
Við fengum að glugga í tölfræði athuganna sem gerðar haf averið í Haffjarðará síðustu árin. Þar hafa slepptir laxar verið merktir til þess að finna út hversu hátt hlutfall endurveiðist og hvar þeir veiðist aftur í ánni. Einn lax sem var merktur í fyrra hlýtur að hafa verið meira en lítið léttgeggjaður.
Það hefur mátt fylgjast með hesthúsamálunum á vef SVFR að undanförnu og menn eru þar langt því frá að vera kátir og skyldi engan undra. En hesthús og Elliðaárnar eiga sér langa sögu. Hér er einfaldlega endurtekið efni á ferð.
Nú er vertíðin 2009 alveg að bresta á, en hún hefst víða með veiði á niðurgöngusjóbirtingi og staðbundnum silungi þann 1.apríl. Margir fara á kreik, en miklu fleiri finna bara að blóðið fer að renna hraðar. Við fundum til grein sem við birtum fyrir réttu ári og löguðum hana til og færðum til þessa dags.
Nú er fimtudagurinn 18.5 og má með nokkurri vissu segja að fyrstu laxarnir séu gengnir í Hvítá í Borgarfirði. Næsti sunnudagur er 21.5 og þann dag sáust fyrstu laxarnir í Laxá í Kjós í fyrra.
Það hefur verið afskaplega lítið að frétta af bökkum vatnanna síðustu daga enda kannski ekki að undra eins og veðurfarið hefur verið. En fram undir síðustu helgi voru þó að berast fréttir af skotum hér og þar, þannig að vötnin voru byrjuð að taka við sér.
Stangaveiðifélag Akureyrar bryddar upp á skemmtilegri nýjung í veiðileyfasölu þessa daganna. Hægt er að kaupa sérstakt Laxárkort með inneign upp á átta daga á þekktum urriðasvæðum.
Veiðiportið á Granda hefur lengi streðað við að halda verði niðri á boðlegum vörum. Nú hefur fyrirtækið opnað vefsíðu til að bæta þjónustuna.
Hreggnasi hefur gengið frá endurnýjun á leigusamningi fyrir Laxá í Kjós til tveggja ára og þar með er á sama deginum tekið fyrir spennandi mögulegt útboð! Áður kom nánast sama frétt frá Norðurá. Jón Þór Júlíusson staðfesti að samkomulag hefði náðst, en baðst undan að tala um krónur og aura.
Veiðifélag Norðurár og SVFR munu hafa náð samkomulagi um áframhaldandi leigu SVFR á ánni um komandi ár. Þar með verður ekkert af útboði því sem margur áleit að gæti orðið hið forvitnilegasta, enda SVFR verið lengur með Norðurá en gengur og gerist.
Veðurfar hefur verið með kaldara móti í vor þrátt fyrir fallega daga, en samt aflast vel víða, einkum þó á sjóbirtingsslóðum og í Þingvalla- og Elliðavatni. Nú er hret í kortunum....
Haft er fyrir satt að hvað eftir annað séu að koma lífleg urriðaskot í Þingvallavatni. Fréttir berast af stórum, stórum urriðum sem eru að slaga upp í 20 punda þeir stærstu. En það berast einnig fregnir af óþverraskap.
Skoski strigakjafturinn og sjónvarpskokkurinn heimsfrægi Gordon Ramsey, var staddur hér á landi um helgina og veiddi m.a. væna sjóbirtinga í Tungulæk í Landbroti. Hér eru skemmtilegar myndir af þeirri uppákomu...
VoV getur staðfest að enn er góð veiðivon á sjóbirtingsslóðum í Skaftárhreppi. Það eru hins vegar fáir að veiða þessa daganna, kannski að menn hafi ekki trú á birtingi í mai?
Það berast fréttir heán að og þaðan. Víðar byrjuð veiði en í Þingvallavatni, en það mun að mestu vera vatnasilungsveiðin sem verður í sviðsljósinu þangað til að laxinn fer að ganga því birtingurinn er að miklu leyti farinn úr ánum.
Menn eru greinilega að lenda í ævintýrum í Þingvallavatni þó að mesta veislan sé eflaust framundan. Við fengum frásögn og myndir af skemmitlegri uppákomu, 16 punda urriði takk fyrir...
Eins og fram hefur komið, hafa menn verið að setja í væna urriða í Þingvallavatni að undanförnu og má fastlega búast við að veiðin bara glæðist á næstu dögum og vikum. Hér er einn af þeim flottari í vor.
Búið er að opna tilboðin í Gljúfurá í Húnavatnssýslu sem fór heldur óvænt í útboð á dögunum. Okkur er tjáð að Pétur Pétursson leigutaki Vatnsdalsár sé með hæsta tilboð og vildi hann ekki neita því aðspurður.
Veiðileyfasalinn Lax-á, sem Árni Baldursson veitir forstöðu, á 25 ára afmæli um þessar mundir og fyrir skemmstu átti einn keppinautanna, Strengir, fyrirtæki Þrastar Elliðasonar, 20 ára afmæli á fimmtugsafmælisdegi eigandans.
Urriðinn er farinn að veiðast í Þingvallavatni eins og fram hefur komið og nokkrir ferlegir boltar eru meðal þeirra sem náðst hafa á land. Margir eru að veiða á flugu, aðrir á spón og beitu. En svo er líka þetta nýja....
Þeir sem fygljast með enska boltanum þekkja eflaust áletrunina á bolnum hjá hinum undarlega Mario Balotelli, Why always me? Veiðimaður að nafni Nils Folmer Jörgensen gæti spurt sig sömu spurningar, nema af öðru tilefni.
Menn eru farnir að róta upp risa urriðum í Þingvallavatni þó að hefðbundinn veiðitími sé ekki hafinn. Við höfum heyrt um afla frá „einkajörðum“ og afla þar sem staðurinn er ekki gefinn upp. Rauði þráðurinn í öllum þessum fréttum er.....
Leigutakar Korpu, eða Úlfarsár eins og hún heitir líka, íhuga nú að gera breytingar á Fossinum, einum albesta veiðistað árinnar, en hann er rétt ofan við sjávarmál.
Á ársfundi VMSt í síðustu viku var vikið að athugunum sem gerðar hafa verið á sæsteinssugu á Íslandi. Þær eru af Evrópskum uppruna og merki um hrygningu hafa ekki fundist.
Fram kom á ársfundi VMSt í gær, að 124 af 400 laxveiðiám Noregs eru lokaðar og þjóðarbúið þar er að verða af andvirði 6,5 milljarða íslenskra króna. Rætur má rekja beint og óbeint til laxeldis.
Aðeins hefur verið fiktað við skráningu veiðibóka dagsdaglega á internetinu og nú er svo komið í þróun þeirrar tækni ef svo má að orði komast, að það er ekkert að vanbúnaði að setja slíkt í gang á fullu.
Ný kvikmynd um lífshlaup laxins í íslenskri náttúru verður frumsýn í Bíó Paradís á komandi föstudagskvöldi. Myndin ber heitið Lónbúinn....
Óhætt er að mæla með hinum árvissa ársfundi Veiðimálastofnunar, en hann fer fram að þessu sinni á morgun, fimmtudaginn 26.apríl í Bíósal Hótel Loftleiða (Natura víst í dag). Það kennir margra grasa að venju.
Helstu veiðitölur þessa vors koma frá Litluá og Tungulæk, en veiði var líka góð framan í Vatnamótum. Eitthvað hefur þó dregið úr þar, mögulega vegna aukins kulda þar um slóðir.
Stefán Pétursson var ásamt félögum sínum við veiðar á sjóbirtingssvæðinu í Grímsá síðast liðinn laugardag og varð þeim að vonum hverft við þegar tröllaukið ský gaus upp og færðist óðfluga nær!
Um helgina skrifuðu landeiegdnur við Haukadalsá undir nýjan samning við nýja leigutaka um leigu á ánni frá 2013 til 2016, að áður undangengnu útboði. Svisslendingurinn Doppler var áður með ána á leigu.
Sagt er að hver árstíð hafi sína fegurð og mörgum finnst vorið bera þar af. Hvað sem því líður, þá er hér dæmi um hvers vegna margir eru þeirrar skoðunar....
Við höfum af og til heyrt rosalegar tölur úr Litluá í Kelduhverfi í vor, en fengum núna loksins eitthvað staðfest til að moða úr. Og það sem fékkst staðfest, undirstrikaði að fregnir af svæðinu voru síður en svo ýktar.
Menn eru víða að kroppa upp fisk og við heyrðum t.d. í þeim sem byrjuðu í Eldvatni í fyrradag og höfðu fengið þrjá stóra fiska fyrir kvöldið og misst nokkra. En svo er þetta með Galtalæk!
Veiði hófst í Elliðavatni í dag og var dálítið líf og fisk að hafa, sérstaklega uppúr miðjum morgni eftir því sem við komumst næst.
Nú er um það bil að ljúka byggingu nýs veiðihús við Selá í Vopnafirði og er það eitthvert albesta veiðihús landsins, þvert ofan í kreppkjaftæðið.
Þingvallavatnið er góður vettvangur byrjenda í fluguveiði, enda er nú í boði námskeið undiryfirskriftinni Fluguveiði í Þingvallavatni.
Við höfum verið með óvenju tíðar fréttir af Eldvatni í Meðallandi að þessu sinni. Hér er aðeins meira, kannski er þetta þó kannski hvað skemmtilegast að skoða m.t.t. hversu stórkostlega vel haldinn þessi vorfiskur er!
Enn sytra inn fréttir af sjóbirtingum og má af þeim ráða að enn sé fiskur í ánum, a.m.k. í Tungulæk, Steinsmýrarvötnum, Eldvatni og Vatnamótum.
Það var stór dagur hjá SVFR í dag, en skrifstofa félagsins var flutt í nýtt húsnæði í húsakynnum OR í Elliðaárdal. Hæðin í Austurveri verður seld. Formaðurinn segir að SVFR sé nú „komið heim“.
Það gleymist stundum að það eru sjóbirtingsár sem opna á vorin fyrir norðan, ekki aðeins á Suðurlandi. Ein þeirra er Húseyjarkvísl. Við heyrðum í Jónasi Elvari Halldórssyni sem var þar fyrir skemmstu með félögum sínum.
Eins og við gátum um og reyndar leiðréttum, þá hefur veiði verið prýðileg í Eldvatni í vor. Það var aðeins í opnun að menn náðu ekki takti við ána, en síðan hefur gefið vel. Við nældum í nokkrar nýjar myndir...
Eftir nákvæmlega viku, fimmtudaginn 19.apríl, sem er Sumardagurinn fyrsti, opnar Elliðavatn. Þeir sem vilja kynnast vatninu nánar fá nú magnað tækifæri til þess.
Í síðustu frétt okkar, sem var samantekt af ýmsum svæðum, gætti ónákvæmni um gang mála í Eldvatni. Þar hefur veiðin verið betri en okkur hafði skilist......
Það hefur verið fremur rólegt að frétta af veiðislóðum það sem af er vori. Sjóbirtingsveiðin víðast „í lagi“, en ekkert allt of mikið að gerast þar fyrir utan. Rennum yfir eitt og annað.
Sjóbirtingsvertíðin hefur byrjað með miklum ágætum þó að smá skugga beri á þar sem Varmá hefur hikstað. En „kanónurnar“ fyrir austan, hafa gefið prýðilega.
Vorveiði á sjóbirtingi hefur byrjað með nokkuð hefðbundnu sniði. Ekki þó í Varmá, sem var afar dauf í opnun og talað var um að fiskur væri þar genginn til hafs.
Gljúfurá í Húnavtnssýslu hefur verið boðin út frá og með árinu 2013 til og með 2016. Hreggnasi hefur leigt ána síðustu árin.
Það virðist ekki síður vera að gerast að leigutakar endurnýi leigusamninga en að ár fari í útboð. Strengir voru t.d. að framlengja Hrútuna til þriggja ára.
Það var rólegt í Minnivallalæk í gær, þegar áin var opnuð, en þrátt fyrir að veður hafi versnað, þá jókst veiðin mjög í Tungufljóti er á hollið leið.
Yfirleitt kemur sumar eftir vor, en ef það er vorlegt óvenjusnemma getur það alveg eins gerst að veturinn minnir á að hann er alls ekki búinn að syngja sitt síðasta.
Veiðiklúbburinn Mokveiðifélag Skagafjarðar opnaði Húseyjarkvísl í gær og gekk veiðiskapurinn vel. Eftir líflega byrjun versnaði veður svo um munaði, vetur skall á á nýjan leik og hægði á fiskidrætti.
Nokkur vötn opnuðu líka í dag/gær(komin nótt núna) og eftir því sem við best vitum þá var líf á hinum endanum. Enda vorið til þessa verið hlýtt og hagstæt....
Veiði byrjaði með smelli í Litluá í Kelduhverfi. Þar er vetrarlegt um að lítast, en veiðin var ekkert vetrarleg, hörkuveiði, enda Litlaá Varmá norðursins!