Kvennaskóli við Miðfjarðará
Hér mundar April Vokey einhenduna.
Rafn Valur Alfreðsson leigutaki Miðfjarðarár setur á stofn kvennaskóla á bökkum árinnar á komandi sumri. Meðal kennara verður ung kona, April Vokey, sem kennt hefur konum fluguköst og fleira tengt fluguveiði í Bresku Kólombíu síðustu árin.
Og hér hefur hún góð tök á tvíhendunni.
Rafn sagði við okkur: “Við hjá FHD verðum með fluguveiðiskóla í Miðfjarðará sem eingöngu er ætlaður fyrir konur á tímabilinu frá 23 júní - 27 júní. Þetta verða 2 x 2 daga holl og verður tekið á móti 12 - 16 konum í hvoru holli. Það verða 4 kennarar og þar á meðal verður April Vokey sem kemur frá British Columbia í Kanada. Þrátt fyrir ungan aldur er hún mjög reynsumikill veiðimaður, flugukastkennari og leiðsögumaður. Það er því mikill fengur að fá hana hingað. Hún hefur einbeitt sér að því að kenna konum fluguköst og allt sem hægt er að kenna um veiði auk þess sem hún leiðsegir konum um BC í leit að steelhead.
Og hér hefur hún sett í stóran stálhaus í undurfögru umhverfi í Bresku Kólombíu.
Meginmarkmiðið með skólanum er að taka á móti þeim ört vaxandi hópi kvenna sem stunda stangveiði og sinna þeim hópi betur en gert hefur verið fram að þessu. Lagt verður upp með að þetta verði skemmtilegur veiðitúr þar sem góð von er á að setja í þann stóra, með kennsluívafi og skemmtilegheitum. Það er ekki gert ráð fyrir að þetta verði einhver strangur skóli, en við munum gera allt sem við getum til að gera þær konur sem koma til okkar að betri veiðimönnum.”
Að öðru leyti bar Rafn sig vel í ástandinu, sagði veiðileyfi hafa selst bærilega, til að mynda væri septembermánuður fullseldur og kominn biðlisti þá og kemur ekki á óvart þar sem september hefur verið afar sterkur í ánni síðustu árin.
