Sandá: Menn urðu margs vísari eftir heimsókn kafarans!

Veiðimenn við Sandá hleyptu kafara í ána nýverið, enda hafði sá hinn sami óskað eftir leyfi til þess að kvikmynda laxa í mögnuðu umhverfi sínu. Það voru því teknir frá einhverjir hyljir og leyfið veitt. Við fáum hér örlitla innsýn í árangurinn.
Það er fyrir tilstilli Arthúrs Bogasonar smábátahöfðingja sem við fengum þessar myndir og birtingarleyfi með. Arthúr hefur verið duglegur við að gauka að okkur margvíslegu efni og kunnum við honum bestu þakkir fyrir. Hann sendi okkur eftirfarandi pistil sem segir frá og útskýrir myndirnar sem hér fylgja:

“Hinn 16. ágúst s.l. gerðist sá sjaldgæfi atburður að veiðimenn leyfðu kafara í fullum herklæðum með myndavélar að vopni að kafa í ána sem þeir voru að veiða. Þetta var í Sandá í Þistilfirði. Kafarinn Erlendur Bogason á Akureyri, sem náði fyrir ekki svo löngu kvikmyndum á heimsmælikvarða af þorsktorfu íÞistilfirði, fékk að stinga sér í nokkra hylji Sandár til myndatöku.

Árangurinn: margar stórglæsilegar myndir. Það er full ástæða til bæði fyrir leigusala og leigutaka að íhuga þann kost að fá hann til myndatöku á sínum vatnasvæðum. Laxarnir hræddust kafarann lítið eða ekki neitt. Hann var í versta falli til leiðinda - eða skipti laxana hreint engu máli. Myndir Erlendur Bogasonar sýna ægifagran undraheim fiskanna sem við dáum svo mjög.
Þá sannaðist það sem margir reyndir veiðimenn vita: þó ekki sjáist kvikindi frá bakka, jafnvel við bestu aðstæður, getur legið lax beint fyrir framan nefið á þeim. Þetta gerðist í einum hylnum: enginn sá neitt þrátt fyrir bestu hugsanlegu skilyrði til að skyggna. Á þeim stað sá kafarinn stærstu laxatorfuna. Á öðrum stað sem veiðimenn Sandár höfðu afskrifað að mestu lágu þó nokkrir laxar og þar af eitt alvöru Sandártröll rétt við landið sem kastað er frá. Trúlega var hann of nálægt landi - fékk aldrei að sjá neina flugu!"
