Gömul vísa aldrei of oft kveðin

Sogið hefur yfir sér ljúfan og kyrrlátan blæ, en ekki er allt sem sýnist. Hér þreytir Jón Þ.Einarsson fallegan lax í Soginu.
Eins og við greindum frá fyrr í vor, þá var skipuð sérstök öryggisnefnd hjá SVFR eftir að voveivlegt banaslys varð í Soginu sl haust. Tók nefndin að sér að yfirfara öll öryggismál félagsins við árnar og vötnin, ekki hvað síst við Sogið, sem er stórhættulegt vatnsfall, jafnvel þegar aðgæsla er fyrir hendi. Á dögunum voru gerðar prófanir á flotvestum og síðan sendi SVFR frá sér gamalt myndband sem þeir Gylfi Pálsson og Eggert Skúlason unnu í sameiningu og birtist á sínum tíma á Stöð 2.
Þ.e.a.s. ef við munum rétt. Alla vega þá er Gylfi á myndbandinu og tekur að sér það vanþakkaða starf að láta sig falla í kalda strengi Sogisns til þess að sýna hvernig eigi að bera sig að, lendi men í slíkum hremmingum. Þar eru á ferðinni ákveðin sundtök og ákveðnar hreyfingar og þess er getið hvað má alls ekki gera. Mjög oft, þegar men detta í árnar, hvort sem það er Sogið eða annað vatnsfall, þá er got að gleyma því ekki, að oftast nær, þó ekki alltaf, þá koma fljótt grynningar eða slökun á straumi fyrrheldur en sienna. Gylfi er sem sagt að sýna á myndbandinu hvernig best er að bera sig að. Hins vegar var SVFR á dögunum að prófa flotvesti sem verða í veiðihúsum félagsins við Sogið á þeirri vertíð sem hafin er. Í það sinnið var það Bjarni Júlíusson, fyrrum formaður SVFR og formaður öryggismálanefndar, sem skrýddist vestunum og lét sig detta í fljótið, undir smásjá björgunarsveitarmanna sem voru tilbúnir á Zodíak ef grípa þyrfti inn í.
En þó að þetta sé í raun endurtekning á gamalli fret, þá er gömul visa aldrei of oft kveðin eins og sagt er, SVFR birti myndbandið fyrir um mánuði síðan eða svo og til að menn gleymi ekki boðskapnum, þá birtum við það hér uppá nýtt. Við skulum endilega allir koma heilir heim í ár og framvegis. Hér er slóðin: http://youtube.com/watch?v=pVUDRimRdXw
