Þrír maríulaxar á einum degi

Minnistæður dagur í Selá í Álftafirði, Guðmundur og Höskuldur Eiríkssynir þreyta sína fyrstu laxa í Gljúfrastreng og Gljúfrahyl. Mamma fylgist vandlega með. Allar myndir eru Guðjóns Péturs Jónssonar.
Umræðan síðustu daga um maríulaxa varð til þess að Guðjón Pétur, einn leigutaka Selár í Álftafirði, dustaði rykið af óvenjulega skemmtilegum degi sem hann upplifði á bökkum árinnar fyrir fáum árum. Þá var hann við leiðsögn með fjögurra manna fjölskyldu, hjónum og tveimru börnum og öll settu þau í sína fyrstu laxa þann dag. Þrír maríulaxar náðust á land.

Hér eru strákarnir búnir að landa löxunum farsællega og naga uggana af.
“Myndirnar tala sínu máli, en þetta var mikið ævintýri fyrir þau, ekki síður en fyrir mig að verða vitni að þessu og hjálpa til. Strákarnir fengu laxa sína samtímis í Gljúfrastreng og Gljúfrahyl, en mamman fékk sinn í Neðra Skjóli. Pabbinn setti síðan í sinn ætlaða maríulax í Efra Skjóli, en missti hann í löndun. Þetta gæti því þannig séð hafa farið betur, en þetta var eigi að síður frábær dagur,” sagði Guðjón Pétur í skeyti sem hann sendi okkur á ritstjórn VoV.

Mamman, Auður Axelsdóttir, komin í kontakt við maríulaxinn sinn í Neðra Skjóli.
Maríulöxum hefur fjölgað mjög síðustu sumur eftir að bankar og fleiri stórfyrirtæki fóru að bjóða viðskiptavinum í stórum stíl í bestu árnar. Margir í hópi gestanna höfðu aldrei fyrr mundað stöng. Í einu tilviki sem við heyrðum af, veiddust fjórir maríulaxar í sama holli í Langá og voru það allt konur sem veiddu laxana, en metið sem við höfum heyrt var 7 laxar í holli, og minnir okkur að það hafi verið í Laxá í Kjós.

Og er hér búin að landa og um það bil að gera ugganum góð skil.
En þegar fjölskylda lendir í slíku á einum og sama deginum þá er það nokkuð sérstakt. Ritstjóri lenti sjálfur í því að dætur hans báðar, þá 8 og 12 ára, veiddu báðar maríulaxa sína á sama deginum í Svalbarðsá í Þistilfirði. Annar þeirra laxa var lítil 19,5 pund, veiddur í hylnum Den Tredje. Hinn var grálúsugur smálax. Þann dag veiddi ritstjóri sjálfur 14 punda hrygnu, en það var aldrei minnst á þann fisk í lýsingum barnanna á hinum eftirminnilega degi!

