Þurrflugur, andstreymispúpur og stripp dauðans
.jpg)
Fallegur smálax. Mynd Gísli Ásgeirsson.
Það á ekki við alla, en sumum finnst sekmmtilegra að lenda í veiðiskap sem er krefjandi og að fiska nánast vatnslausar árnar á Vestur- og Suðvesturlandi hugnast sumum betur en öðrum. Tökum dæmi Laxá í Kjós, þar höfum við heyrt af alls konar brellum sem menn beita. Heildartalan í veiðinni er ekki há, en sumir hafa verið að fá eftirminnilega veiði.
Við heyrðum t.d. í Haraldi Eiríkssyni markaðsfulltrúa hjá SVFR sem var leiðsögumaður fyrir ítalskan bankastjóra í ánni fyrir skemmstu. Eins og oft hefur komið fram, þá eru vissir hyljir neðarlega í ánni gersamlega seilaðir af fiski og segir Haraldur lax og sjóbirting vera á “mörgum hæðum” í Álabökkum og Káranesfljóti. Í vatnsleysinu, sem er það “mesta” sem elstu menn muna dugar skammt hefðbundnar aðferðir eins og að strippa smáflugur. Þó má reyna það ef að dumbungur er eða að vindur gárar yfirborðið, en þá verður að nota örflugur og í það minnsta 6-7 punda taum, helst grennri þó, sem er half önnur stangarlengd. Það sama má segja um mjög smáar hitstúpur, en þær venjulegu eru allt of klossaðar þótt smáar séu.
En nú að undanförnu hefur eitt og annað verið reynt. T.d. veiddi umræddur Ítali 6 laxa á þurrflugur, örsmáa Grey Wulff. Og hann fékk fleiri tökur og missti líka nokkra laxa. “Hingað kem ég aftur,” sagði þessi Ítali”, segir Haraldur. “Sumir vilja krefjandi veiðiskap og ég held að Laxá í Kjós sé eina laxveiðiáin sem býður upp á jafn spennandi möguleika á því að veiða lax á þurrflugu.”
Haraldur segir einnig gefa fiska að veiða smáar púpur andstreymis líkt og gert er í silungsveiðinni. Nota tökuvara, en þá þarf að vera skýjan og helst örlítil gára, því ella getur fiskurinn fælst skuggann af línunni.
Síðan er lýsing á athöfnum eins leiðsögumannsins sem fór í Álabakka. Það var búið að reyna margt og ekkert gekk. Hann setti því á taum sem var half önnur stangarlengd, örsmáa flugu og þvældi þessu út. Lét kyrrt liggja í heila mínútu, skorðaði síðan stöngina milli lappanna og strippaði síðan af heljarhraða með báðum höndum. Og þetta hreif! Hann setti í nokkra fiska.
Lykillinn getur því verið að fara ofur varlega og reyna eitthvað sem fiskurinn hefur ekki séð áður.
