Vatnsdalsá: Tvö sambærileg ár síðan 2002

Pétur Pétursson og hjálparkokkar hans á bökkum Vatnsdalsár hafa sett upp á vef sínum athyglisverðan samanburð á aflatregðu fyrri hluta þessa sumars við fimm síðustu veiðisumur. Samanburðurinn miðast við 17.júlí sl og kemur í ljós að tvö af umræddum fimm sumrum var veiðin á sama tíma sambærileg.
Losað úr fallegum laxi í Hnausastreng í upphafi veiðitímans 2007. Mynd fengin frá www.vatnsdalsa.is
Sem sagt, þann 17.7 nú voru komnir 68 laxar á land, en sama dag 2002 voru komnir 80 laxar og sama dag 2003 nákvæmlega 68 laxar eins og nú. Til gamans má geta þess að í samanburðinum sem skoða má á www.vatnsdalsa.is kemur fram að 2002 varð heildarveiðin 698 laxar og 2003 varð heildarveiðin 496 laxar. Þetta þóttu heldur mögur ár, sérstaklega 2003, en eftir það hefur verið góður stígandi uppá við, 778 2004, 1101 2005 og smá fall, 936 í fyrra.
Hvaða þýðingu þessar tölur munu hafa fyrir lokaútkomuna 2007 er auðvitað ekkert hægt að segja til um, en athyglisvert að svipað hafi verið uppi á teningunum tvisvar á síðustu fimm árum í umræddri á. Á meðan að vatnsleysi hefur víðast hvar verið talið orsakavaldurinn að lélegri laxveiði í flestum ám til þessa þá hefur það frekar verið mikill vatnshiti í Flóðinu í Vatnsdal sem hefur haldið öllu niðri þar. Kemur í veg fyrir að laxinn dreifi sér um ána og bunkast þess í stað í einn veiðistað, hinn stóra og víðafeðma Hnausastreng. Ef kíkt er í veiðibókina í Vatnsdalsá á netinu kemur í ljós að í morgun var búið að skrá 72 laxa. 64 þeirra eru veiddir í Hnausastreng.
