votnogveidi_Fors_2009-04
eitt og annað

Sá fékk toppinn bættan umyrðalaust

24.5.2007

 

0015

Flugunni kastað fallega. Ekkert að vanbúnaði þarna. Mynd Einar Falur.

Nýlega var á spjallþráðum SVFR nýasta af allnokkrum “umræðum” um gæði flugustanga frá Nielsen sem ýmsir ónafngreindir aðilar hafa notað til að rakka þær ágætu stangir niður. Eins ómálefnaleg og ömurleg og sú umræða hefur verið þá getur eitt og annað skemmtilegt komið útúr slíku, eins og t.d. þegar rifjað er upp hvernig stangir brotnuðu.

Ritstjóri hefur átt fjórar flugustangir sem fóru í sundur og alltaf var það frúin sem mölvaði gripinn. Það var fyrst 7,5 feta fimma frá Hardy. Mörg ár síðan og frúin að freista þess að setja í sinn fyrsta flugulax. Þetta var í svokölluðum Potti í Álftá, veiðistað nokkru ofan við Brúarland, sem var afar góður um tíma, en svo gerðist eitthvað og lax hætti að leggjast þar. En þarna var mikið af laxi og eftir nokkrar tilraunir setti frúin í lax sem reyndist vera býsna vænn. Hann stökk fljótlega og ágiskunin var 10-11 pund, nokkuð dökk hrygna, enda liðið vel á ágústmánuð. En svo fór taumurinn í sundur og þegar að var gáð var að sjá að vindhnútur hefði verið á taumnum miðjum og því fór sem fór.

Þetta var ögurstund og stönginni var kastað á eyrina í geðshræringu, sígarettupakkinn dreginn upp og kveikt í. Síðan þrammaði hún keðjureykjandi fram og aftur um eyrina á meðan þess var beðið að taugarnar næðu sér niður. En þá kvað skyndilega við brestur.

Þá vorum við einu sinni í Norðurá og þegar niður í Stekk var komið, mundum við eftir því að ein af betri stöngunum, gamla góða Hardy nían, hafði verið tekin af bílnum við veiðihúsið af einhverjum ástæðum?.og gleymst upp við veiðihús. Frúin tók að sér að aka uppí hús og sækja hana og stakk henni inn um afturglugga á gamla Súbarúnum. Ók síðan af stað niður eftir aftur, en fannst helst til vindasamt í bílnum og smellti fingri á rofann á rafmagnsdrifinu?og lokaði rúðunni?.en þá kvað skyndilega við brestur.

Tungulækur - Jón Sandholt

Stundum gefa skemmdirnar sig ekki fyrr en á ögurstundu er fiskur er þreyttur. Mynd HÓ. Tekin við Tungulæk.

Gamla Sage áttan okkar hefur tvisvar brotnað. Einu sinni var stigið ofan á hana á Arnarvatnsheiði og öðru sinni var verið að klungrast með hana yfir ójöfnur, jafnvægi tapaðist augnablik sem nægði til að toppinum var potan djúpt inn undir þúfu eina stóra og ljóta. Við það brotnaði toppurinn.

Karl faðir minn hefur tvisvar brotið flugustangir sínar. Hann svaraði aldrei fortölum undirritaðs að halda á stöng sinni vísandi aftur eða yfir öxl, á göngu og breytti ekki til fyrr en hann hafði rekið toppinn á gamalli Hardystöng í rofabarð og stútað toppinum. Seinna tilvikið var miklu dramatískara, hann var þá að þreyta lax í Gljúfurá í Borgarfirði og var að klöngrast af einum stein niður á annan við veiðistaðinn Einarsfoss, er hann rann til og datt í ána. Lenti stöngin, gömul ABU fíberglerja, undir honum og fór í sundur á tveimur stöðum. En laxinum náði hann. Var það kolsvartur 3 punda tittur.

Menn geta, og hafa, sagt ótrúlegar sögur og sumir botna ekkert í því af hverju merkjavaran góða bara datt í sundur í framkastinu, en fara svo að skilja það þegar þeim er bent á að þeir voru kannski að dúndra út stórum þyngdum túpum, sem slógust utan í stangirnar á feiknahraða í rokinu. Stundum brotna stangirnar eftir svoleiðis laskanir er fiskur er þreyttur og stundum fara þær í botnfestum. Er stundum svakalegt að sjá menn djöflast á stöngum sínum í botnfestum. Jafnvel dagfarslega prúðir menn umturnast við það að festa í botni.

Ritstjóri getur sagt sögu af manni sem lenti í því að lykkjurnar biluðu, en það hafði ekkert með meðferð á stönginni að gera. Viðkomandi hafði hnýtt sjálfur flugulínu við baklínu og ekki mikið verið að spá í hvort að hnúturinn sá rynni greiðlega í gegnum lykkjurnar á stönginni. En þegar hann setti í dýrbrjálaðan nýgenginn ca 12 punda hæng á Eyrinni í Norðurá þá var stundin komin að velta því fyrir sér. En þá var það um seinan, því laxinn reif allt út og hnúturinn festist strax í neðstu og stærstu lykkjunni. Hraðinn var slíkur að lykkjan bara rifnaði af og síðan fóru þær allar hver af annarri og allt gerðist það á nánast 2-3 sekúndum og við hvað hár smellur sem menn heyrðu yfir á bakkann á móti þrátt fyrir dynjandi árniðinn sem þarna er. Þetta minnti helst á það þegar vöðvatröll í teiknimyndum rífa af sér skyrtuna og slíta af allar tölurnar í leiðinni áður en þau berja einhvern. En leikurinn gerðist ójafnari eftir þetta og laxinn sleit fljótlega tauminn.

En bestu frásögnina sagði okkur Óli í Veiðihorninu nú í vikunni. Hann átti í spjalli við Marc Bale, einn af forstjórum Sage, sem voru með þeim fyrstu að bjóða lífstíðarábyrgð á flugustöngum. Veiðimenn voru þó beðnir að láta í té útskýringar á því hvernig stangir þeirra botnuðu. Mátti skoða það sem nokkurs konar könnun. Einn sem skilaði inn brotnum toppi af Sage flugustöng útskýrði tjónið með þeim hætti að hann hefði verið að verja líf sitt fyrir fjallaljóni sem sótti að honum. Þessi mun hafa fengið toppinn bættan umyrðalaust!

 





15 Jæja þá, eina enn....kvenþjóðin er falleg, ekki bara í mannheimum.

Fyrstu laxarnir ættu að vera mættir!

Nú er fimtudagurinn 18.5 og má með nokkurri vissu segja að fyrstu laxarnir séu gengnir í Hvítá í Borgarfirði. Næsti sunnudagur er 21.5 og þann dag sáust fyrstu laxarnir í Laxá í Kjós í fyrra.

 
Elliðavatn 1.mai 2009

Var komið í gang fyrir hretið

Það hefur verið afskaplega lítið að frétta af bökkum vatnanna síðustu daga enda kannski ekki að undra eins og veðurfarið hefur verið. En fram undir síðustu helgi voru þó að berast fréttir af skotum hér og þar, þannig að vötnin voru byrjuð að taka við sér.

 
Albert Sævarsson þreytir urriða

SVAK með skemmtilega nýjung

Stangaveiðifélag Akureyrar bryddar upp á skemmtilegri nýjung í veiðileyfasölu þessa daganna. Hægt er að kaupa sérstakt Laxárkort með inneign upp á átta daga á þekktum urriðasvæðum.

 
Tómas Helgason með risaurriða úr Þingvallavatni

Veiðiportið eykur þjónustuna

Veiðiportið á Granda hefur lengi streðað við að halda verði niðri á boðlegum vörum. Nú hefur fyrirtækið opnað vefsíðu til að bæta þjónustuna.

 
KJOS-2008-06-19-LAXFOSS

Hreggnasi áfram með Laxá í Kjós

Hreggnasi hefur gengið frá endurnýjun á leigusamningi fyrir Laxá í Kjós til tveggja ára og þar með er á sama deginum tekið fyrir spennandi mögulegt útboð! Áður kom nánast sama frétt frá Norðurá.  Jón Þór Júlíusson staðfesti að samkomulag hefði náðst, en baðst undan að tala um krónur og aura.

 
23 Í Stekknum var Ólafur Vigfússon að flengja Spegilinn, en það var sama sagan þar....

Norðurá áfram hjá SVFR

Veiðifélag Norðurár og SVFR munu hafa náð samkomulagi um áframhaldandi leigu SVFR á ánni um komandi ár. Þar með verður ekkert af útboði því sem margur áleit að gæti orðið hið forvitnilegasta, enda SVFR verið lengur með Norðurá en gengur og gerist.

 
Minni-05

Í tilefni af komandi hreti

Veðurfar hefur verið með kaldara móti í vor þrátt fyrir fallega daga, en samt aflast vel víða, einkum þó á sjóbirtingsslóðum og í Þingvalla- og Elliðavatni. Nú er hret í kortunum....

 
urriði úr Þingvallavatni

Þingvallavatn og makríllinn

Haft er fyrir satt að hvað eftir annað séu að koma lífleg urriðaskot í Þingvallavatni. Fréttir berast af stórum, stórum urriðum sem eru að slaga upp í 20 punda þeir stærstu. En það berast einnig fregnir af óþverraskap.

 
2012 Gordon Ramsey í Tungulæk 2

Gordon Ramsey í góðum málum Tungulæk

Skoski strigakjafturinn og sjónvarpskokkurinn heimsfrægi Gordon Ramsey, var staddur hér á landi um helgina og veiddi m.a. væna sjóbirtinga í Tungulæk í Landbroti. Hér eru skemmtilegar myndir af þeirri uppákomu...

 
2012 Haus á stórfiski

Enn er birtingur á ferðinni!

VoV getur staðfest að enn er góð veiðivon á sjóbirtingsslóðum í Skaftárhreppi. Það eru hins vegar fáir að veiða þessa daganna, kannski að menn hafi ekki trú á birtingi í mai?

 
Afli 1.mai 2009

Sitt lítið af hverju af silungaslóðum

Það berast fréttir heán að og þaðan. Víðar byrjuð veiði en í Þingvallavatni, en það mun að mestu vera vatnasilungsveiðin sem verður í sviðsljósinu þangað til að laxinn fer að ganga því birtingurinn er að miklu leyti farinn úr ánum.

 
2012 þingv3

Enn eitt tröllið úr Þingvallavatni á þessu vori

Menn eru greinilega að lenda í ævintýrum í Þingvallavatni þó að mesta veislan sé eflaust framundan. Við fengum frásögn og myndir af skemmitlegri uppákomu, 16 punda urriði takk fyrir...

 
2012 urriðatröll

Einn sá flottasti úr Þingvallavatni í vor!

Eins og fram hefur komið, hafa menn verið að setja í væna urriða í Þingvallavatni að undanförnu og má fastlega búast við að veiðin bara glæðist á næstu dögum og vikum. Hér er einn af þeim flottari í vor.

 
Brúarhylur. Sér inn í gljúfrin undir þjóðvegi 1

Um útboðið í Gljúfurá í Hún

Búið er að opna tilboðin í Gljúfurá í Húnavatnssýslu sem fór heldur óvænt í útboð á dögunum. Okkur er tjáð að Pétur Pétursson leigutaki Vatnsdalsár sé með hæsta tilboð og vildi hann ekki neita því aðspurður.

 
Lax úr Miðfjarðará

Sölufyrirtækin með stórafmæli

Veiðileyfasalinn Lax-á, sem Árni Baldursson veitir forstöðu, á 25 ára afmæli um þessar mundir og fyrir skemmstu átti einn keppinautanna, Strengir, fyrirtæki Þrastar Elliðasonar, 20 ára afmæli á fimmtugsafmælisdegi eigandans.

 
Ellidaa-010507-04

Urriðinn sólginn í nýlunduna

Urriðinn er farinn að veiðast í Þingvallavatni eins og fram hefur komið og nokkrir ferlegir boltar eru meðal þeirra sem náðst hafa á land. Margir eru að veiða á flugu, aðrir á spón og beitu. En svo er líka þetta nýja....

 
2012 risaurriði

„Hvers vegna alltaf ég?“

Þeir sem fygljast með enska boltanum þekkja eflaust áletrunina á bolnum hjá hinum undarlega Mario Balotelli, Why always me? Veiðimaður að nafni Nils Folmer Jörgensen gæti spurt sig sömu spurningar, nema af öðru tilefni.

 
urriði úr Þingvallavatni

Vantar ekki tröllin í Þingvallavatni

Menn eru farnir að róta upp risa urriðum í Þingvallavatni þó að hefðbundinn veiðitími sé ekki hafinn. Við höfum heyrt um afla frá „einkajörðum“ og afla þar sem staðurinn er ekki gefinn upp. Rauði þráðurinn í öllum þessum fréttum er.....

 
Fossinn í Korpu

Vilja breyta fossinum í Korpu

Leigutakar Korpu, eða Úlfarsár eins og hún heitir líka, íhuga nú að gera breytingar á Fossinum, einum albesta veiðistað árinnar, en hann er rétt ofan við sjávarmál.

 
Sæsteinssuga föst á laxi í Ytri Rangá

Eitt og annað um sugur

Á ársfundi VMSt í síðustu viku var vikið að athugunum sem gerðar hafa verið á sæsteinssugu á Íslandi. Þær eru af Evrópskum uppruna og merki um hrygningu hafa ekki fundist.

 
Halalýs

Vont ástand norskra laxveiðiáa

Fram kom á ársfundi VMSt í gær, að 124 af 400 laxveiðiám Noregs eru lokaðar og þjóðarbúið þar er að verða af andvirði 6,5 milljarða íslenskra króna. Rætur má rekja beint og óbeint til laxeldis.

 
02

„Tilbúið í almenna notkun“

Aðeins hefur verið fiktað við skráningu veiðibóka dagsdaglega á internetinu og nú er svo komið í þróun þeirrar tækni ef svo má að orði komast, að það er ekkert að vanbúnaði að setja slíkt í gang á fullu.

 
2012 Lónbuinn 3

Lónbúinn frumsýndur

Ný kvikmynd um lífshlaup laxins í íslenskri náttúru verður frumsýn í Bíó Paradís á komandi föstudagskvöldi. Myndin ber heitið Lónbúinn....

 
27 - Flottur!

Forvitnilegur ársfundur VMSt

Óhætt er að mæla með hinum árvissa ársfundi Veiðimálastofnunar, en hann fer fram að þessu sinni á morgun, fimmtudaginn 26.apríl í Bíósal Hótel Loftleiða (Natura víst í dag). Það kennir margra grasa að venju.

 
2012 4 Vatnamót

Veiðiþorstinn horfinn í bili

Helstu veiðitölur þessa vors koma frá Litluá og Tungulæk, en veiði var líka góð framan í Vatnamótum. Eitthvað hefur þó dregið úr þar, mögulega vegna aukins kulda þar um slóðir.

 
2012 sinueldar við Grímsá

All svakalegt sinuský

Stefán Pétursson var ásamt félögum sínum við veiðar á sjóbirtingssvæðinu í Grímsá síðast liðinn laugardag og varð þeim að vonum hverft við þegar tröllaukið ský gaus upp og færðist óðfluga nær!

 
2012 Haukubændur

Skrifað undir í Haukadal

Um helgina skrifuðu landeiegdnur við Haukadalsá undir nýjan samning við nýja leigutaka um leigu á ánni frá 2013 til 2016, að áður undangengnu útboði. Svisslendingurinn Doppler var áður með ána á leigu.

 
2012 eldvatn

Himnaríki að vori

Sagt er að hver árstíð hafi sína fegurð og mörgum finnst vorið bera þar af. Hvað sem því líður, þá er hér dæmi um hvers vegna margir eru þeirrar skoðunar....

 
2012 litlaá

Svaka tölur og fiskar úr Litluá

Við höfum af og til heyrt rosalegar tölur úr Litluá í Kelduhverfi í vor, en fengum núna loksins eitthvað staðfest til að moða úr. Og það sem fékkst staðfest, undirstrikaði að fregnir af svæðinu voru síður en svo ýktar.

 
IMG_9601ow

Stórfiskar úr Galtalæk

Menn eru víða að kroppa upp fisk og við heyrðum t.d. í þeim sem byrjuðu í Eldvatni í fyrradag og höfðu fengið þrjá stóra fiska fyrir kvöldið og misst nokkra. En svo er þetta með Galtalæk!

 
Elliðavatn 1.mai 2009

Elliðavatnið opnað

Veiði hófst í Elliðavatni í dag og var dálítið líf og fisk að hafa, sérstaklega uppúr miðjum morgni eftir því sem við komumst næst.

 
2011 nýja veiðihúsið

Fossgerði, nýtt veiðihús við Selá

Nú er um það bil að ljúka byggingu nýs veiðihús við Selá í Vopnafirði og er það eitthvert albesta veiðihús landsins, þvert ofan í kreppkjaftæðið. 

 
Thingvellir-010507-05

Fluguveiði í Þingvallavatni

Þingvallavatnið er góður vettvangur byrjenda í fluguveiði, enda er nú í boði námskeið undiryfirskriftinni Fluguveiði í Þingvallavatni.

 
2012 eldvatn Vivvi við Hundavað

Að koma vel haldinn undan vetri

Við höfum verið með óvenju tíðar fréttir af Eldvatni í Meðallandi að þessu sinni.  Hér er aðeins meira, kannski er þetta þó kannski hvað skemmtilegast að skoða m.t.t. hversu stórkostlega vel haldinn þessi vorfiskur er!

 
Vatnamót

Fréttir af birtingum

Enn sytra inn fréttir af sjóbirtingum og má af þeim ráða að enn sé fiskur í ánum, a.m.k. í Tungulæk, Steinsmýrarvötnum, Eldvatni og Vatnamótum.

 
Elliðaá

Stangaveiðifélagið „komið heim“

Það var stór dagur hjá SVFR í dag, en skrifstofa félagsins var flutt í nýtt húsnæði í húsakynnum OR í Elliðaárdal. Hæðin í Austurveri verður seld. Formaðurinn segir að SVFR sé nú „komið heim“.

 
2012 4

Gerðu það gott í Kvíslinni

Það gleymist stundum að það eru sjóbirtingsár sem opna á vorin fyrir norðan, ekki aðeins á Suðurlandi. Ein þeirra er Húseyjarkvísl. Við heyrðum í Jónasi Elvari Halldórssyni sem var þar fyrir skemmstu með félögum sínum.

 
Lilja Ola með 9 punda birting 2012

Líf og fjör í Eldvatni

Eins og við gátum um og reyndar leiðréttum, þá hefur veiði verið prýðileg í Eldvatni í vor. Það var aðeins í opnun að menn náðu ekki takti við ána, en síðan hefur gefið vel. Við nældum í nokkrar nýjar myndir...

 
13_MAI_Ellidavatn

Guttormur kynnir Elliðavatn

Eftir nákvæmlega viku, fimmtudaginn 19.apríl, sem er Sumardagurinn fyrsti, opnar Elliðavatn. Þeir sem vilja kynnast vatninu nánar fá nú magnað tækifæri til þess.

 
Eldvatn-Hundavað 2011

„Stórt“ holl í Eldvatni

Í síðustu frétt okkar, sem var samantekt af ýmsum svæðum, gætti ónákvæmni um gang mála í Eldvatni. Þar hefur veiðin verið betri en okkur hafði skilist......

 
Tungu20103

Allur gangur á því

Það hefur verið fremur rólegt að frétta af veiðislóðum það sem af er vori. Sjóbirtingsveiðin víðast „í lagi“, en ekkert allt of mikið að gerast þar fyrir utan. Rennum yfir eitt og annað.

 
2012 - 2

Af sjóbirtingum í vor

Sjóbirtingsvertíðin hefur byrjað með miklum ágætum þó að smá skugga beri á þar sem Varmá hefur hikstað. En „kanónurnar“ fyrir austan, hafa gefið prýðilega.

 
Veiðimaður við Varmá 1.mai 2009

Fiskur genginn úr Varmá?

Vorveiði á sjóbirtingi hefur byrjað með nokkuð hefðbundnu sniði. Ekki þó í Varmá, sem var afar dauf í opnun og talað var um að fiskur væri þar genginn til hafs.

 
Brúarhylur. Sér inn í gljúfrin undir þjóðvegi 1

Gljúfurá í Hún í útboð

Gljúfurá í Húnavtnssýslu hefur verið boðin út frá og með árinu 2013 til og með 2016. Hreggnasi hefur leigt ána síðustu árin.

 
Hrutafjardara-sept-2009-08

Strengir áfram með Hrútu

Það virðist ekki síður vera að gerast að leigutakar endurnýi leigusamninga en að ár fari í útboð. Strengir voru t.d. að framlengja Hrútuna til þriggja ára.

 
2012 Tungulækur

Tíðindi héðan og þaðan

Það var rólegt í Minnivallalæk í gær, þegar áin var opnuð, en þrátt fyrir að veður hafi versnað, þá jókst veiðin mjög í Tungufljóti er á hollið leið.

 
2012 opnun Geirlandsár

Vetur skollinn aftur á fyrir austan

Yfirleitt kemur sumar eftir vor, en ef það er vorlegt óvenjusnemma getur það alveg eins gerst að veturinn minnir á að hann er alls ekki búinn að syngja sitt síðasta.

 
2012 kvíslin opnuð

Flott opnun Húseyjarkvíslar

Veiðiklúbburinn Mokveiðifélag Skagafjarðar opnaði Húseyjarkvísl í gær og gekk veiðiskapurinn vel. Eftir líflega byrjun versnaði veður svo um munaði, vetur skall á á nýjan leik og hægði á fiskidrætti.

 
2012 Vífó

Nokkur vötn opnuðu líka....

Nokkur vötn opnuðu líka í dag/gær(komin nótt núna) og eftir því sem við best vitum þá var líf á hinum endanum. Enda vorið til þessa verið hlýtt og hagstæt....

 
2012 Litlaa

Frábær byrjun í Litluá

Veiði byrjaði með smelli í Litluá í Kelduhverfi. Þar er vetrarlegt um að lítast, en veiðin  var ekkert vetrarleg, hörkuveiði, enda Litlaá Varmá norðursins!

 

Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica