Ari á Argentínu: Auðveldar uppskriftir sem allir ættu að geta prófað
Vorbirtingurinn, þ.e.a.s geldfiskurinn, er góður matfiskur. Mynd HÓ.
Áður en að allt treðst undir í laxafréttum skal það haft hugfast að menn hafa verið að veiða silung í tvo mánuði og sumir gert það fjandi gott. Okkur datt í hug að menn vildu fara að rýma til í frystikistunum fyrir konungi fiskana(þeim smærri), losa sig við þessi silungalík. Þess vegna báðum við Ara Karlsson hjá hinu frábæra Argentínu steikhúsi, www.argentina.is að smella á okkur nokkrum einföldum og kannski dálítið öðru vísi uppskriftum að silungi. Hann brást auðvitað hið besta við og lesnú áfram…og ekki slefa ofaní lyklaborðin.
“Þetta eru allt mjög auðveladar uppskriftir sem allir ættu að geta prófað,” sagði Ari og gerið svo vel, hefst nú lesturinn:

1. Silungsconfit með tómatsalsa
1 flak silungi
Salt
Olía
Silungurinn er skorinn niður í bita og saltaður á báðum hliðum látinn standa inn í kæli í 20 mín. Silungurinn er þá skolaður og settur í eldfast mót og olíu hellt yfir þangað til hún flýtur yfir silunginn. Ofninn er hitaður í 40°C og silungurinn er eldaður í 20 mín síðan tekin út og látinn kólna í olíunni. Svo er hann þerraður og létt grillaður á roðhliðinni einni og borinn fram með tómatsalsa
Tómatsalsa
1 stk plómutómatar
Steinselja
Koriander
Salt og pipar
Ólifuolía
Plómutómaturinn er afhýddur og kjarnhreinsaður. Skorinn niður í teninga, steinseljan og koriander er saxað niður og blandað saman við tómatinn. Ólífuolían er sett út í og smakkað til með salti og pipar.

2.Kryddhjúpaður silungur með ostrusósu
Kryddhjúpur á silung:
1 msk.Papríka
1 tsk.Salt
1 tsk.Pipar
2 tsk.Fennell mulinn
1/4 tsk.Cayennepipar
Allt blandað saman. Silungnum er velt upp úr hjúpnum og grillaður á báðum hliðum og borinn fram með ostrusósu.

3.Silungs rile með blómkálssósu
1 stk silungs flak
40 gr. Ferskt basil
1 tsk svartur pipar
Salt eftir þörf
Sólblóma olía
1/2 haus blómkál
2 dl rjómi
Kjúklingakraftur eftir smekk
Silungurinn er létt grillaður á báðum hliðum, penslið grillið vel áður sem og fiskinn , silungurinn er settur til hliðar og leyft að kólna.
Blómkálssósan er gerð næst, blómkálið er skorið gróft niður og sett í pott ásamt rjómanum, piparnum og smá kjúklingakrafti, sjóðið blómkálið þar til það er mjúkt í gegn.
Allt saman er sett í matvinnsluvél ásamt 1 msk. af smjöri og maukað.
Silungurinn er rifinn af roðinu og settur í skál, gróft söxuðum basil bætt saman við ásamt salti og pipar, takið 1/4 af blómkalssósunni og blandið saman við silunginn og smakkið til með grófu salti.
Gott er að bera þennan rétt fram sem salat, með spínati, kirsuberjatómötum og fersku dilli."
Ari hefur talað. Það var og. Síðan eigum við einhvers staðar nokkrar eldri uppskriftir sem Ingvar Sigurðsson fyrrum yfirmatreiðslumeistari á Argentínu lét okkur í té. Það er nokkuð um liðið, en góðar uppskriftir standast tímans tönn og ætlum við því að renna þeim uppskriftum fljótlega, enda eru margir silungar í mörgum frystikystum nú um stundir.
