42 MINKAR Á RÚMU ÁRI OG EKERT LÁT Á

Lárus með einn "sem drepur ekki meira af seiðunum mínum".
Gleðilegt ár kæru lesendur og megi hið nýja ár vera enn betra en það síðasta. Menn huga að ýmsu er varðar veiðislóðirnar og þeir sem eru á kafi í eignarhaldi, hugsa dæmið lengra en venjulegt folk sem bara kaupir veiðileyfi og fer að veiða. Lárus Gunnsteinsson, sem við vorum með jólaviðtal við á dögunum, er t.d. á kafi í meindýraeyðingu austur á Vopnafirði og Bakkafirði þar sem hann er ásamt félögum sínum með Vesturdalsá og Hölkná í Bakkafirði á leigu. Síðasta rúma árið hefur Lárus drepið 42 minka og hefur snjalla aðferð við veiðiskapinn.

Hér má sjá rörið á árbakka og mold við munann. Grjóti er hlaðið nærri til að minkurinn velji fremur að fara um gatið.
“Ég er með alls 8 gildrur og þær eru nánast allar að gefa. Þetta eru orðnir 42 minkar á rúmlega einu ári og það er ekkert lát á þessu. Ef ég myndi slaka á klónni yrði allt yfirfullt af mink á stundinni. Það var Doddi minkur, betur þekktur sem Þórður Pétursson, sá mikli veiðimaður á Húsavík, sem kenndi mér þessa aðferð við minkaveiðina, en hún er fólgin í því að smellan eða gildran er sett inní 25-30 cm svert rör sem er um 30 cm langt og rörið sett við árfarveg eða í lækjarfarveg við ána. Einnig er gott að setja þetta við brúarstólpa. Gildran fæst hjá Hlað á húsavík eða alla vega þar hef ég fengið þær og kosta um kr. 2000 stk. það er ekki sett æti í smelluna heldur er hún spennt og sett inn í rörið og hulin með grasi síðan er sett mold eða steinar ofan á rörið og yfir það.

Dýrið kemur lang oftast við árfarveg eða með lækjum og sér í gegn um rörið og ætlar í gegn, stígur þá á felluna sem smellur og deyðir dýrið um leið. Rétt er að minna á að ekki er gott að vera með gildrur úti 2-5 vikur eftir varptíma fugla nema vakta þær vel, því annars er ekki hætta á að önnur dýr fari inn ég hef fengið um 40 minka á rúmu ári. Stundum hef ég vitjað á 2 mánaða fresti en rétt er að gera það oftar, sérstaklega í mai mánuði og um það tímabil. Annars hefur mér gengið ágætlega í ágúst og September,” sagði Lárus.

Brúarstólpar eru einnig kjörstaðir til minkaveiða. Þarna er grjótruðningur utanum smellurör.
Þetta er frábært framtak hjá Lárusi og félögum hans eystra, ekki er nóg með að minkurinn sé skaðræðiskvikindi í ánni sjálfri með seiða og fiskadrápi, heldur er hann einnig svakalegur fuglum sem fyrir verða. Dæmið sem hann nefnir, rúmlega 40 stykki á þessum stutta tíma segir meira en mörg orð um hversu mikil plága hér er á ferðinni. Væri ráð að fleiri tækju sig til og hreinsuðu minkinn upp.
