votnogveidi_Fors_2009-02

eitt og annað

EF_027

MEIRA UM STANGAHALDARA - 5.4.2005

Við höfum áður gert að umræðuefni málefni stangarhaldara á veiðibílnum. Þeir eiga það til að fara á flug og eru dæmi um að tugþúsunda tjón hafi orðið er heilu rekkarnir af merkjavöru takast á loft á hundrað kílómetra hraða….og enda úti í skurði!

 
GG_035

TRIX Á SÍLABLEIKJUNA - 1.4.2005

Inn til okkar rakst á dögunum ungur veiðimaður, Hrafn Ágústsson, sem stundað hefur Þingvallavatn af kappi og sagði okkur margar mergjaðar veiðisögur af þeirri verstöð, m.a. er hann veiddi þar 13 punda urriða á straumflugu sem félagi hans einn gaf honum og hann hnýtti undir þó að hann noti ALDREI slíkt agn í vatninu. En hann gerði það í þessu tilviki í tilefni af því að hann sá gríðarvænan urriða skjóta kryppu uppúr yfirborðinu. Risinn tók í öðru kasti og reyndist vera 13 punda!
 
GG_001

FRÁBÆR VEIÐIBATI...EN VEIÐI MISSKIPT - 1.4.2005

Það lítur út fyrir að heildarlaxveiðin 2004 hafi verið nærri 45.000 löxum, samkvæmt bráðabirgðatékki Orra Vigfússonar formanns NASF og er það mesta veiði síðan sumrin 1986 og 1988, sem gáfu 46.661 og 47.979 laxa, en voru fræg fyrir að þá moraði allt í eldis- og hafbeitarlaxi í ánum, sérstaklega á Suðvestur- og Vesturlandi.
 
Brunna_EF_003

ÓVANIR ENDILEGA PRÓFI..... - 1.4.2005

Við sem sjáum þessum vef fyrir efni höfum mikla reynslu í stangaveiði af flestu tagi og höfum oft og einatt orðið þess varir að þeir sem eru óvanir fluguveiði, annað hvort hreinir byrjendur eða skammt á veg komnir, fara í hálfgert kerfi ef minnst er á "hitch" eða á íslensku gáruhnút, eða "upstream" eða á íslensku, andstreymisveiði, að ekki sé minnst á ef nota á tökuvara á "upstreamið" í ofanálag. Menn ættu samt ekki að óttast og taka þann kostinn að halda sig við grundvallaratriðin. Þeir sem þora að breyta til veiða trúlega miklu mun betur þegar til lengri tíma er litið heldur en hinir sem aldrei breyta til.
 
GG_021

EINKUM ÞEGAR RÖKKVA TEKUR.... - 1.4.2005

Þegar tími vertíðarinnar er farinn í hönd sem merkja má alvöru breytingar á birtuskilyrðum. Eða með öðrum orðum, það er farið að dimma á kvöldin. Það er magnaður veiðitími og spurning hvort menn ættu ekki að gera meira af því að veiða áfram til klukkan tíu í stað þess að hætta klukkan níu. Það verður dimmt, en ævintýrin geta gerst eins og dæmin sanna, sérstaklega ef lofthiti hefur verið hár yfir daginn og það snöggkólnar ekki með kvöldinu. Þessi kvöldveiði er sérstaklega girnileg þar sem aðstæður eru góðar til að "strippa" fyrir lax með smáum flugum. Þótt ótrúlegt kunni að þykja, þá eru það oftar en ekki dökkar flugur sem virka við þessar aðstæður og gamalkunnur veiðimaður, nú látinn, Kolbeinn Ingólfsson, sagði umsjónarmanni að best hefði sér reynst að nota hreinlega bleksvartar flugur við þessar kringumstæður.

 
0011

ÞETTA MEÐ STANGARHALDARANNA... - 1.4.2005

Þær eru orðnar allnokkrar sögurnar af því að menn hafa horft uppá stangirnar fljúga af bíltoppnum. Í seinni tíð hefur þetta einkum orðið með þeim hætti að sogskálahaldarar hafa bara tekið uppá því að losna og hefur þá komið skrið á stangarekkann allan saman og hefur þetta í nokkrum tilvikum haft slæmar afleiðingar. Versta dæmið sem við þekkjum hafði í för með sér fjórar mölvaðar flugustangir og gnístran tanna.

 

KÖTTURINN - 1.4.2005

Í fyrra var sá er þetta ritar í byrjun júlí á bökkum Straumfjarðarár. Lítið vatn var í ánni og ég átti bara dagspart, eitt síðdegi og kvöld. Eitthvað var komið af laxi upp fyrir Sjávarfoss, en hann var að taka illa eða ekki. Því var það að ég ákvað að fara niður fyrir, á svæði talsvert fyrir neðan Sjávarfoss, þar sem stundum kemur sjóbleikja þegar þannig stendur á sjávarföllum. Þarna eru þrír staðir þar sem bleikju er von og heitir sá efsti Neðri Nethamar. En þegar niður eftir var komið, kom í ljós að áin hafði grafið út nokkuð laglegan bakkahyl með streng efst rétt fyrir ofan Neðri Nethamar.
 
0025

BÚIÐ UM BRÁÐINA - 1.4.2005

Menn standa ekki alltaf í þeim sporum að geta rennt fiski beint í kæli eða frysti í veiðihúsum. Séu menn í slíku umhverfi er þó alls ekki nóg að troða fiski í plastslöngu og loka kæliklefanum á eftir sér. Menn skyldu kappkosta að nýta aflann til hins ýtrasta. Fátt er ömurlegra fyrir stangaveiðimann en að henda líkum frá síðasta sumri er frystikistan heima er tekin í gegn um búin undir nýja vertíð. Til að greiða fyrir að menn nýti aflann verður hann að vera aðlaðandi og til þess þarf hann rétta meðferð áður en hann fer í kæli og síðan í frost.
 


15 Jæja þá, eina enn....kvenþjóðin er falleg, ekki bara í mannheimum.

Fyrstu laxarnir ættu að vera mættir!

Nú er fimtudagurinn 18.5 og má með nokkurri vissu segja að fyrstu laxarnir séu gengnir í Hvítá í Borgarfirði. Næsti sunnudagur er 21.5 og þann dag sáust fyrstu laxarnir í Laxá í Kjós í fyrra.

 
Elliðavatn 1.mai 2009

Var komið í gang fyrir hretið

Það hefur verið afskaplega lítið að frétta af bökkum vatnanna síðustu daga enda kannski ekki að undra eins og veðurfarið hefur verið. En fram undir síðustu helgi voru þó að berast fréttir af skotum hér og þar, þannig að vötnin voru byrjuð að taka við sér.

 
Albert Sævarsson þreytir urriða

SVAK með skemmtilega nýjung

Stangaveiðifélag Akureyrar bryddar upp á skemmtilegri nýjung í veiðileyfasölu þessa daganna. Hægt er að kaupa sérstakt Laxárkort með inneign upp á átta daga á þekktum urriðasvæðum.

 
Tómas Helgason með risaurriða úr Þingvallavatni

Veiðiportið eykur þjónustuna

Veiðiportið á Granda hefur lengi streðað við að halda verði niðri á boðlegum vörum. Nú hefur fyrirtækið opnað vefsíðu til að bæta þjónustuna.

 
KJOS-2008-06-19-LAXFOSS

Hreggnasi áfram með Laxá í Kjós

Hreggnasi hefur gengið frá endurnýjun á leigusamningi fyrir Laxá í Kjós til tveggja ára og þar með er á sama deginum tekið fyrir spennandi mögulegt útboð! Áður kom nánast sama frétt frá Norðurá.  Jón Þór Júlíusson staðfesti að samkomulag hefði náðst, en baðst undan að tala um krónur og aura.

 
23 Í Stekknum var Ólafur Vigfússon að flengja Spegilinn, en það var sama sagan þar....

Norðurá áfram hjá SVFR

Veiðifélag Norðurár og SVFR munu hafa náð samkomulagi um áframhaldandi leigu SVFR á ánni um komandi ár. Þar með verður ekkert af útboði því sem margur áleit að gæti orðið hið forvitnilegasta, enda SVFR verið lengur með Norðurá en gengur og gerist.

 
Minni-05

Í tilefni af komandi hreti

Veðurfar hefur verið með kaldara móti í vor þrátt fyrir fallega daga, en samt aflast vel víða, einkum þó á sjóbirtingsslóðum og í Þingvalla- og Elliðavatni. Nú er hret í kortunum....

 
urriði úr Þingvallavatni

Þingvallavatn og makríllinn

Haft er fyrir satt að hvað eftir annað séu að koma lífleg urriðaskot í Þingvallavatni. Fréttir berast af stórum, stórum urriðum sem eru að slaga upp í 20 punda þeir stærstu. En það berast einnig fregnir af óþverraskap.

 
2012 Gordon Ramsey í Tungulæk 2

Gordon Ramsey í góðum málum Tungulæk

Skoski strigakjafturinn og sjónvarpskokkurinn heimsfrægi Gordon Ramsey, var staddur hér á landi um helgina og veiddi m.a. væna sjóbirtinga í Tungulæk í Landbroti. Hér eru skemmtilegar myndir af þeirri uppákomu...

 
2012 Haus á stórfiski

Enn er birtingur á ferðinni!

VoV getur staðfest að enn er góð veiðivon á sjóbirtingsslóðum í Skaftárhreppi. Það eru hins vegar fáir að veiða þessa daganna, kannski að menn hafi ekki trú á birtingi í mai?

 
Afli 1.mai 2009

Sitt lítið af hverju af silungaslóðum

Það berast fréttir heán að og þaðan. Víðar byrjuð veiði en í Þingvallavatni, en það mun að mestu vera vatnasilungsveiðin sem verður í sviðsljósinu þangað til að laxinn fer að ganga því birtingurinn er að miklu leyti farinn úr ánum.

 
2012 þingv3

Enn eitt tröllið úr Þingvallavatni á þessu vori

Menn eru greinilega að lenda í ævintýrum í Þingvallavatni þó að mesta veislan sé eflaust framundan. Við fengum frásögn og myndir af skemmitlegri uppákomu, 16 punda urriði takk fyrir...

 
2012 urriðatröll

Einn sá flottasti úr Þingvallavatni í vor!

Eins og fram hefur komið, hafa menn verið að setja í væna urriða í Þingvallavatni að undanförnu og má fastlega búast við að veiðin bara glæðist á næstu dögum og vikum. Hér er einn af þeim flottari í vor.

 
Brúarhylur. Sér inn í gljúfrin undir þjóðvegi 1

Um útboðið í Gljúfurá í Hún

Búið er að opna tilboðin í Gljúfurá í Húnavatnssýslu sem fór heldur óvænt í útboð á dögunum. Okkur er tjáð að Pétur Pétursson leigutaki Vatnsdalsár sé með hæsta tilboð og vildi hann ekki neita því aðspurður.

 
Lax úr Miðfjarðará

Sölufyrirtækin með stórafmæli

Veiðileyfasalinn Lax-á, sem Árni Baldursson veitir forstöðu, á 25 ára afmæli um þessar mundir og fyrir skemmstu átti einn keppinautanna, Strengir, fyrirtæki Þrastar Elliðasonar, 20 ára afmæli á fimmtugsafmælisdegi eigandans.

 
Ellidaa-010507-04

Urriðinn sólginn í nýlunduna

Urriðinn er farinn að veiðast í Þingvallavatni eins og fram hefur komið og nokkrir ferlegir boltar eru meðal þeirra sem náðst hafa á land. Margir eru að veiða á flugu, aðrir á spón og beitu. En svo er líka þetta nýja....

 
2012 risaurriði

„Hvers vegna alltaf ég?“

Þeir sem fygljast með enska boltanum þekkja eflaust áletrunina á bolnum hjá hinum undarlega Mario Balotelli, Why always me? Veiðimaður að nafni Nils Folmer Jörgensen gæti spurt sig sömu spurningar, nema af öðru tilefni.

 
urriði úr Þingvallavatni

Vantar ekki tröllin í Þingvallavatni

Menn eru farnir að róta upp risa urriðum í Þingvallavatni þó að hefðbundinn veiðitími sé ekki hafinn. Við höfum heyrt um afla frá „einkajörðum“ og afla þar sem staðurinn er ekki gefinn upp. Rauði þráðurinn í öllum þessum fréttum er.....

 
Fossinn í Korpu

Vilja breyta fossinum í Korpu

Leigutakar Korpu, eða Úlfarsár eins og hún heitir líka, íhuga nú að gera breytingar á Fossinum, einum albesta veiðistað árinnar, en hann er rétt ofan við sjávarmál.

 
Sæsteinssuga föst á laxi í Ytri Rangá

Eitt og annað um sugur

Á ársfundi VMSt í síðustu viku var vikið að athugunum sem gerðar hafa verið á sæsteinssugu á Íslandi. Þær eru af Evrópskum uppruna og merki um hrygningu hafa ekki fundist.

 
Halalýs

Vont ástand norskra laxveiðiáa

Fram kom á ársfundi VMSt í gær, að 124 af 400 laxveiðiám Noregs eru lokaðar og þjóðarbúið þar er að verða af andvirði 6,5 milljarða íslenskra króna. Rætur má rekja beint og óbeint til laxeldis.

 
02

„Tilbúið í almenna notkun“

Aðeins hefur verið fiktað við skráningu veiðibóka dagsdaglega á internetinu og nú er svo komið í þróun þeirrar tækni ef svo má að orði komast, að það er ekkert að vanbúnaði að setja slíkt í gang á fullu.

 
2012 Lónbuinn 3

Lónbúinn frumsýndur

Ný kvikmynd um lífshlaup laxins í íslenskri náttúru verður frumsýn í Bíó Paradís á komandi föstudagskvöldi. Myndin ber heitið Lónbúinn....

 
27 - Flottur!

Forvitnilegur ársfundur VMSt

Óhætt er að mæla með hinum árvissa ársfundi Veiðimálastofnunar, en hann fer fram að þessu sinni á morgun, fimmtudaginn 26.apríl í Bíósal Hótel Loftleiða (Natura víst í dag). Það kennir margra grasa að venju.

 
2012 4 Vatnamót

Veiðiþorstinn horfinn í bili

Helstu veiðitölur þessa vors koma frá Litluá og Tungulæk, en veiði var líka góð framan í Vatnamótum. Eitthvað hefur þó dregið úr þar, mögulega vegna aukins kulda þar um slóðir.

 
2012 sinueldar við Grímsá

All svakalegt sinuský

Stefán Pétursson var ásamt félögum sínum við veiðar á sjóbirtingssvæðinu í Grímsá síðast liðinn laugardag og varð þeim að vonum hverft við þegar tröllaukið ský gaus upp og færðist óðfluga nær!

 
2012 Haukubændur

Skrifað undir í Haukadal

Um helgina skrifuðu landeiegdnur við Haukadalsá undir nýjan samning við nýja leigutaka um leigu á ánni frá 2013 til 2016, að áður undangengnu útboði. Svisslendingurinn Doppler var áður með ána á leigu.

 
2012 eldvatn

Himnaríki að vori

Sagt er að hver árstíð hafi sína fegurð og mörgum finnst vorið bera þar af. Hvað sem því líður, þá er hér dæmi um hvers vegna margir eru þeirrar skoðunar....

 
2012 litlaá

Svaka tölur og fiskar úr Litluá

Við höfum af og til heyrt rosalegar tölur úr Litluá í Kelduhverfi í vor, en fengum núna loksins eitthvað staðfest til að moða úr. Og það sem fékkst staðfest, undirstrikaði að fregnir af svæðinu voru síður en svo ýktar.

 
IMG_9601ow

Stórfiskar úr Galtalæk

Menn eru víða að kroppa upp fisk og við heyrðum t.d. í þeim sem byrjuðu í Eldvatni í fyrradag og höfðu fengið þrjá stóra fiska fyrir kvöldið og misst nokkra. En svo er þetta með Galtalæk!

 
Elliðavatn 1.mai 2009

Elliðavatnið opnað

Veiði hófst í Elliðavatni í dag og var dálítið líf og fisk að hafa, sérstaklega uppúr miðjum morgni eftir því sem við komumst næst.

 
2011 nýja veiðihúsið

Fossgerði, nýtt veiðihús við Selá

Nú er um það bil að ljúka byggingu nýs veiðihús við Selá í Vopnafirði og er það eitthvert albesta veiðihús landsins, þvert ofan í kreppkjaftæðið. 

 
Thingvellir-010507-05

Fluguveiði í Þingvallavatni

Þingvallavatnið er góður vettvangur byrjenda í fluguveiði, enda er nú í boði námskeið undiryfirskriftinni Fluguveiði í Þingvallavatni.

 
2012 eldvatn Vivvi við Hundavað

Að koma vel haldinn undan vetri

Við höfum verið með óvenju tíðar fréttir af Eldvatni í Meðallandi að þessu sinni.  Hér er aðeins meira, kannski er þetta þó kannski hvað skemmtilegast að skoða m.t.t. hversu stórkostlega vel haldinn þessi vorfiskur er!

 
Vatnamót

Fréttir af birtingum

Enn sytra inn fréttir af sjóbirtingum og má af þeim ráða að enn sé fiskur í ánum, a.m.k. í Tungulæk, Steinsmýrarvötnum, Eldvatni og Vatnamótum.

 
Elliðaá

Stangaveiðifélagið „komið heim“

Það var stór dagur hjá SVFR í dag, en skrifstofa félagsins var flutt í nýtt húsnæði í húsakynnum OR í Elliðaárdal. Hæðin í Austurveri verður seld. Formaðurinn segir að SVFR sé nú „komið heim“.

 
2012 4

Gerðu það gott í Kvíslinni

Það gleymist stundum að það eru sjóbirtingsár sem opna á vorin fyrir norðan, ekki aðeins á Suðurlandi. Ein þeirra er Húseyjarkvísl. Við heyrðum í Jónasi Elvari Halldórssyni sem var þar fyrir skemmstu með félögum sínum.

 
Lilja Ola með 9 punda birting 2012

Líf og fjör í Eldvatni

Eins og við gátum um og reyndar leiðréttum, þá hefur veiði verið prýðileg í Eldvatni í vor. Það var aðeins í opnun að menn náðu ekki takti við ána, en síðan hefur gefið vel. Við nældum í nokkrar nýjar myndir...

 
13_MAI_Ellidavatn

Guttormur kynnir Elliðavatn

Eftir nákvæmlega viku, fimmtudaginn 19.apríl, sem er Sumardagurinn fyrsti, opnar Elliðavatn. Þeir sem vilja kynnast vatninu nánar fá nú magnað tækifæri til þess.

 
Eldvatn-Hundavað 2011

„Stórt“ holl í Eldvatni

Í síðustu frétt okkar, sem var samantekt af ýmsum svæðum, gætti ónákvæmni um gang mála í Eldvatni. Þar hefur veiðin verið betri en okkur hafði skilist......

 
Tungu20103

Allur gangur á því

Það hefur verið fremur rólegt að frétta af veiðislóðum það sem af er vori. Sjóbirtingsveiðin víðast „í lagi“, en ekkert allt of mikið að gerast þar fyrir utan. Rennum yfir eitt og annað.

 
2012 - 2

Af sjóbirtingum í vor

Sjóbirtingsvertíðin hefur byrjað með miklum ágætum þó að smá skugga beri á þar sem Varmá hefur hikstað. En „kanónurnar“ fyrir austan, hafa gefið prýðilega.

 
Veiðimaður við Varmá 1.mai 2009

Fiskur genginn úr Varmá?

Vorveiði á sjóbirtingi hefur byrjað með nokkuð hefðbundnu sniði. Ekki þó í Varmá, sem var afar dauf í opnun og talað var um að fiskur væri þar genginn til hafs.

 
Brúarhylur. Sér inn í gljúfrin undir þjóðvegi 1

Gljúfurá í Hún í útboð

Gljúfurá í Húnavtnssýslu hefur verið boðin út frá og með árinu 2013 til og með 2016. Hreggnasi hefur leigt ána síðustu árin.

 
Hrutafjardara-sept-2009-08

Strengir áfram með Hrútu

Það virðist ekki síður vera að gerast að leigutakar endurnýi leigusamninga en að ár fari í útboð. Strengir voru t.d. að framlengja Hrútuna til þriggja ára.

 
2012 Tungulækur

Tíðindi héðan og þaðan

Það var rólegt í Minnivallalæk í gær, þegar áin var opnuð, en þrátt fyrir að veður hafi versnað, þá jókst veiðin mjög í Tungufljóti er á hollið leið.

 
2012 opnun Geirlandsár

Vetur skollinn aftur á fyrir austan

Yfirleitt kemur sumar eftir vor, en ef það er vorlegt óvenjusnemma getur það alveg eins gerst að veturinn minnir á að hann er alls ekki búinn að syngja sitt síðasta.

 
2012 kvíslin opnuð

Flott opnun Húseyjarkvíslar

Veiðiklúbburinn Mokveiðifélag Skagafjarðar opnaði Húseyjarkvísl í gær og gekk veiðiskapurinn vel. Eftir líflega byrjun versnaði veður svo um munaði, vetur skall á á nýjan leik og hægði á fiskidrætti.

 
2012 Vífó

Nokkur vötn opnuðu líka....

Nokkur vötn opnuðu líka í dag/gær(komin nótt núna) og eftir því sem við best vitum þá var líf á hinum endanum. Enda vorið til þessa verið hlýtt og hagstæt....

 
2012 Litlaa

Frábær byrjun í Litluá

Veiði byrjaði með smelli í Litluá í Kelduhverfi. Þar er vetrarlegt um að lítast, en veiðin  var ekkert vetrarleg, hörkuveiði, enda Litlaá Varmá norðursins!

 

Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica