Til að lesendur átti sig á því hvað um er að ræða þegar talað er um að „Iðuklettur“ hafi horfið, þá birtum við þessar myndir þeirra hjóna Hilmars og Oddnýju....
Klettadrangur sá er einkennt hefur veiðistaðinn Iðu á 3.svæði Stóru Laxár er horfinn og virðist áin hafa hreinlega sópað honum burt í flóðum nýlega. Klettur þessi var engin smásmíði og ekki ofsögum sagt um náttúruöflin og eyðingarmátt þeirra.
Enn eitt útboðið á þekktri laxveiðiá er nú komið af stað. Nú er það Haukadalsá í Dölum, ein þekktasta laxveiðiá landsins, sem er í útboði. Hinn svissneski Doppler hefur haft ána síðustu árin og spurning hvað verður nú.
Við erum að vinna í næsta tbl Veiðislóðar og kemur það út á næstunni. Við lögðum upp með tilraun sem fól í sér sex blöð á ca 7-8 mánuðum á síðasta ári. Tilraunin byrjaði um vorið og lauk um jólin. Núna höfum við lagt línurnar fyrir framhaldið.
Nú styttist í næstu vertíð og alla hlakkar til. Í öllum æðibunuganginum er hins vegar rétt á stundum að flýta sér hægt og gæta alls öryggis. Stangaveiði getur nefnilega verið stórhættuleg!
Veiðimálastofnun og Háskóli Íslands hafa undirritað samstarfssamning á sviði rannsókna og menntunar.
Hið þekkta sænska veiðivörufyrirtæki Loop Tackle Design hefur skipt um eigendur að stórum hluta og þar með tryggt reksturinn en fyrirtækið var orðið illa sett og horfur slæmar.
Meðan að það er enn dimmt að mestu og snjóar enn, þá er ekki úr vegi að skella inn stöku U-túbi sem glatt gæti sinni og sál. Þetta hér fundum við á FB-þræði nýverið og smellpassar sem mótvægi við stemminguna í veðrinu þessa daganna.
Breytinga á veiðitilhögun er að vænta í Skjálfandafljóti eftir að landeigendur opnuðu tilboð í A-deild árinnar. Há tilboð bárust.
Laxveiði í sjó er klárlega bönnuð við Íslandsstrendur, en ytra eru menn sums staðar að veiða vel og veiða stórt. T.d. í Eystrasalti, en frá slíkum laxveiðum höfum við sagt frá áður hér á VoV.
Nýjasta tölublað Sportveiðiblaðsins var að detta inn um lúguna um helgina og kennir þar margra grasa eins og fyrri daginn. Hafsjór af greinum og viðtölum úr ýmsum áttum og blandað saman skotveiði og stangaveiði, auk annars...
Stuttu eftir að VoV birti frétt um eignaskipti á Veiðibúðinni við lækinn, var okkur send fréttatilkynning frá kaupanda. Þar kom fleira fram heldur en við birtum. Kíkjum á það.
Nokkrir af sérfræðingum VMSt hafa sent frá sér niðurstöður á rannsóknum á fiskistofnum og lífríki Sogsins. Þar virðist hafa verið veitt meira en stofninn þolir og vatnsborðshækkanir hafa valdið seiðum búsyfjum svo eitthvað sé nefnt.
Veiðifélag Þverár og Kjarrár annars vegar og Starir ehf hins vegar undirrituðu í dag leigusamning um ána til fimm ára, frá og með næsta ári og til 2017.
Ómar Ómarsson, stangaveiðimaður og lesandi VoV sendi okkur glaðning af betri sortinni nú í vikunni. Um er að ræða myndskeið frá Steinboganum í Jöklu. Hvílíkt ævintýri hér á ferð.....
Nú er að fara af stað flugukastnámskeið Veiðiheims. Þau verða þrjú talsins, eitt í janúar, eitt í febrúar og það síðasta í mars.
Það er skammt stórra högga á milli hjá þeim hjónum Maríu Önnu Clausen og Ólafi Vigfússyni. Þau eru nýbúin að....
Stór tíðindi eru að verða í búðarflóru veiðimanna um þessar mundir, en Sportbúðin að Krókhálsi 5 verður lokað í næstu viku, og síðan opnuð uppá nýtt hinu megin við götuna.....
Fiskifræðingar VMSt hafa sent frá sér samantekt þar sem þeir sýna fram á hvers vegna Hofsá hefur dregist aftur úr Selá í veiði síðustu árin, en árnar hafa einmitt verið þekktar fyrir að halda sama dampi í gegnum tíðina.
Það er stutt í næstu vertíð, undurstutt og dag er sjáanlega tekið að lengja. Margir telja daganna, m.a. við hér á VoV og Veiðislóð. Hér er skemmtilegur þáttur af U-Tube sem ætti að ylja í skammdeginu...
Útlit er fyrir því að byrjað verði frá grunni með uppbyggingu Skógár sem laxveiðiá á þessu ári og Ásgeir Ásmundsson sem staðið hefur í eldlínunni síðustu tólf árin, hverfi á braut og komi þar hvergi nærri.
Nú í ársbyrjun eru menn farnir að spá fyrir alvöru í því hvort að sumarið 2012 verði enn eitt þurrkasumarið með árnar stiklandi oní grjóti stóran hluta veiðitímans og laxatorfurnar sampakkaðar ofaní dýpstu pyttum. Það eru þó góð teikn á lofti.
Fáeinir dagar eftir af árinu og stutt í næstu vertíð. Það er margt hægt að gera sér til dundurs til að stytta tímann, t.d. að gera vídeo af síðasta sumri og leyfa öðrum að njóta, líkt og Snævarr Örn Georgsson gerði!
Það getur verið gaman að garva í statistík. Við vorum að því um daginn með árnefndir SVFR, en að þessu sinni komumst við í samantektir fyrir Laxá í Kjós og Bugðu. Það var Aron Jóhannsson sem tók þetta saman fyrir Hreggnasa, www.hreggnasi.is leigutaka árinnar, og við fengum leyfi til að kíkja
Komiði sæl öll. www.votnogveidi.is , www.veidislod.is og www.anglingiceland.is óska veiðimönnum, og raunar landsmönnum öllum, gleðilegra jóla.....
Við birtum hér kafla úr viðtali við gömlu kempuna Kristján heitinn Fjeldsted, kenndur við Ferjukot, en viðtal þetta er að finna í nýútkominni bók um Grímsá í Borgarfirði.
Við sögðum frá útgáfu á 25 gönguleiðum á Suðvesturhorninu, skráð af Reyni Ingibjartssyni. Fyrir utan að fá útrás fyrir útivistarþörf í gönguferðum, þá liggja margar af leiðunum nærri veiðisvæðum og veiðimenn geta orðið margs vísari.
Sjötta tölublað okkar félaga af Veiðislóð er nú komið út og er sækjanlegt hér á www.votnogveidi.is og á eigin vef, www.veidislod.is Blaðið er með margbreytilegu efni sem viðkemur sportveiði á ýmsa vegu. Við lokum árinu með þessu tölublaði og þökkum fyrir viðtökurnar, sem hafa verið magnaðar.
Dálítið hefur borist af athyglisverðum fréttamolum af útboðs- og leigumálum. Þannig var t.d. nýlega lýst eftir tilboðum í Skjálfandafljót og það fréttist auk þess um helgina að Orri Vigfússon hefði framlengt samningi um Fljótaá til næstu ára.
Íslenska stangaveiðiárbókin Vötn og Veiði kemur nú út enn og aftur og er full af athyglisverðu efni að vanda.
Þið getið sagt það ef þið viljið, en sú bók sem við kynnum hér er kanski ekki veiðibók, en hún á samt fullt og mikið erindi til veiðimanna, sérstaklega þeirra sem lifa og hrærast á Suðvesturhorninu.
Hér að neðan eru brot úr bókinni Leitin að stórlaxinum – og flugurnar sem virka. Bókin er eftir Ásmund og Gunnar Helgasyni og er einnig DVD diskur með sama nafni.
Gunnar Bender og Þór Jónsson hafa skrifað veiðibókina Stórlaxar þar sem rætt er við nokkra þekkta einstaklinga og viðkomandi segja frá viðhorfum sínum og segja veiðisögur...
Út er komin bókin um Grímsá og Tunguá í Borgarfirði og er það þriðja bókin í bókaflokki Litrófs um íslenskar laxveiðiár. Bók tafðist smá vegna kreppu, en er nú komin út.
Stangaveiðiárbókin Vötn og Veiði er nýlega komin í verslanir, en árbók um stangaveiði hefur þar með komið út í einni mynd eða annarri allt frá árinu 1988.
Óhætt er að segja að misvísandi túlkanir á útboðum í laxveiðiár hafi borist úr röðum LV, Landsambands veiðifélaga, síðustu daga.
Við rákumst á dögunum á fremur óborganlega veiðisögu í leiðsögubók Sigmars Ingasonar um Geirlandsá. Af sögunni má ráða að ráðlegt sé að losa afar gætilega úr festum, ekki aðeins til að hlífa stönginni við ótímabæru broti, heldur.....
Á sama tíma og hver veiðibókin af annarri kemur út hér á landi, þá er ný veiðibók að slá í gegn beggja vegna Atlantsála. Sú heitir Atlantic Salmon Magic og nokkurs konar „hliðarrit“ hennar 100 Best Salmon Flies.
Enn ein veiðibókin hefur litið dagsins ljós í þessu jólabókaflóði, sem stendur nú heldur betur undir nafni hvað veiðimenn varðar. Það er Pálmi Einarsson hjá Designhousone sem hefur sent frá sér bókina Bara vatn og fiskur.
Hið vinsæla jóla-opna hús SVFR verður í kvöld í félagsheimilinu í Austurveri og verður margt á boðstólum þar eins og jafnan. Ekki hvað síst árleg jólahugvekja séra Pálma Matthíassonar.
Veiðifyrirkomulagið verður breytt í Breiðdalsá á komandi sumri þar sem leigutaka þótti nóg um hversu mörgum stórlöxum, og nær öllum smálöxum, var fargað úr ánni þrátt fyrir að tilmæli væru um að sleppa stórlaxi.
Á meðan ýmsir fjölmiðlar hérlendis mæra nýjar laxeldisþreifingar hefur orðið enn eitt stórslysið í Noregi, eitt það stærsta frá upphafi. Alls sluppu allt að 700þúsund laxar úr kvíum tveggja fyrirtækja nú í vikunni.
Við vorum aðeins að glugga í ársskýrslu SVFR í gær, nánar tiltekið í skýrslur árnefnda, en þar leynist oft sitthvað fróðlegt. Við stöldruðum t.d. við tölur úr Soginu og Gljúfurá sem segja nokkra sögu. Einnig rákumst við á fyndna veiðiskýrslu!
Það er alltaf skemmtilegt að glugga í ársskýrslu SVFR. Margt fréttnæmt og forvitnilegt þar að finna, t.d. í skýrslum árnefnda, en þar má stundum sjá athyglisverða þróun mála...
Myndskeiðið sem hér fylgir er af U‘tube og er búið að fara nokkra hringi meðal veiðimannahópa á FB og víðar í samskiptaheiminum.
Hið Íslenska bókmenntafélag hefur gefið út bókina Íslenskar veiðiár eftir R.N.Stewart hershöfðingja, í íslenskri þýðingu Einars Fals Ingólfssonar ljósmyndara og blaðamanns. Á frummálinu heitir bókin Rivers of Iceland og kom út um miðja síðustu öld. Hefur verið illfáanleg, en er nú komin á íslensku.
Búið er að opna tilboð í efri hluta Flókadalsár í Fljótum og er Stangaveiðifélag Siglufjarðar með hæsta tilboðið...
Risalaxar eru alltaf að koma á land og þeir vekja alltaf athygli. Í Svíðþjóð veiddist nýverið sá stærsti til þessa...risalax sem sló allt annað út.
Hið Íslenska bókmenntafélag hefur gefið út bókina Íslenskar Veiðiár, í íslenskri þýðingu Einars Fals Ingólfssonar á bók R.N.Stewarts hershöfðingja, Rivers of Iceland.