votnogveidi_Fors_2009-03
veiðistaðurinn

KLEIFARVATN LEYNIR Á SÉR

11.4.2005

Kleifarvatn leynir á sér. Þetta stóra dularfulla stöðuvatn á Reykjanesskaganum austanverðum sem ýmist hækkar í eða lækkar eftir jarðhræringum hverju sinni. Skemmst er að minnast að það lækkaði vatnsyfirborð vatnsins um allt að 5 til 6 metra eftir Suðurlandsskjálftana árið 2000. Á þurrt voru komin lítil jarðhitasvæði, en vatnið bunaði ofan í sprungur sem opnuðust á botni vatnsins í hamförunum. Annars er þetta vatn um 9 ferkílómetrar að flatarmáli og þegar full vatnshæð er vatnið með dýpstu vötnum landsins, rúmlega 90 metrar mest.

Í þessu vatni er bleikja og a.m.k. til skamms tíma var þarna gríðarstór urriði. Fyrrum var einnig urriði sem virðist hafa horfið, a.m.k. man sá er þetta ritar eftir því að hafa veitt nokkra með karli föður sínum á spón frá klöppum fyrir hart nær 40 árum! Það voru 1 til 2 punda fiskar og stærri fiskar á eftir spónum af og til þó ekki tækju þeir. En seinni tíma urriðinn var sleppifiskur sem átti að aðstoða við grysjun bleikju í vatninu. Sumt af honum náði hvalastærð og veiddust m.a. einsatklingar sem voru um eða yfir 20 pund.

 En urriðinn er að því er virðist horfinn. Kleifarvatn er eigi að síður talsvert vinsælt veiðivatn, væntanlega vegna þess hve stutt þangað er frá höfuðborgarsvæðinu og jafnframt hefur vatnið útlitið með sér ef þannig mætti að orði komast. Umhverfið er kalt og vatnið djúpt, en fjallahringurin, bergmyndanir og græn djúpin heilla veiðimenn. Þetta er ekki síður vinsælt útivistarsvæði.

 0025Svo virðist sem mest af veiðinni hafi verið í suðurenda vatnsins hin seinni ár. Sum þessara ára hefur vatnið þó verið lokað, vegna ormasýkingar í bleikjunni sem stafaði af ætisskorti. Þrátt fyrir lokun vorum við af og til að heyra af mönnum sem fóru í vatnið og veiddu vel. En þarna í suðurendanum er vatnið ekki ýkja djúpt og þar er jafnframt heitt vatn sem rennur af jarðhitasvæði í vatnið. Fyrir vikið er ríkulegt lífríki og mikil fæða fyrir bleikjuna. Þarna hafa menn aðallega veitt á vorin, frá opnun og fram eftir júní, en traffíkin í vatnið hefur fjarað út er liðið hefur á júní. Vatnið er sum sé notað mikið til líkt og Elliðaávatn, Vífilstaðavatn og Þingvallavatn.

 Mynd frá Einari Fal.

Upplýsingar þær er við höfum yfir að ráða segja að bleikjan í vatninu sé að stærstum hluta 1 til 2 pund og fyrir hafi komið að menn hafi fengið upp í 4 punda fiska. Mest stunda þarna flugukappar æfingar og hafa veitt best á vel kynntar púpur með kúluhausum. Oftast höfum við heyrt nafnið Peacock bera á góma.

 Af og til má sjá menn standa vaktina frá tanga við vatnið norðanvert. Vestan tangans er vatnið grængolandi, en út af tanganum og austan hans er grynnra. Sá er þetta ritar stundaði Kleifarvatn nokkuð stíft á sínum yngri árum (viðbjóðslega langt síðan!) og þá var aðallega veitt frá þessum tanga og inn á víkinni austan hans. Þarna fengum við iðulega góða bleikjuveiði og mest af fiskinum beggja vegna pundsins. Boltafiskarnir um það bil 1,5 pund og upp undir 2 pund. Þetta var ágætlega haldinn fiskur en þó ekki spikfeitur. Á grynndri hluta þessa veiðisvæðis veiddum við mest á flugu í flotkúlu eða með flotlínu með sökkenda og í þá daga voru það flugur á borð við Zulu-gengið og Tiel and Black sem voru í uppáhaldi. Í botnleysinu vestan tangans notuðum við þetta fyrirbæri sem af einhverjum ástæðum er kallað Gyðingur. Öngull er tekinn af Íslandsspón eða spinner, taumur, allt að 15-20 cm langur hnýttur aftan í og annað hvort fluga á endann eða öngull með maðki. Við vorum mest fyrir maðkinn og fengum þarna góð skot af og til. Stundum settum við litla sökku fyrir framan spinnerinn til að koma honum niður og samt var stóri sannleikurinn að draga lúshægt því dýpið þarna var ógurlegt. Vísast er þarna mun grynnra nú til dags, enda lækkað talsvert í vatninu síðustu árin. Ekki veit ég hvort að þarna eru góðir veiðistaðir í dag, en hvers vegna ætti svo ekki að vera?

 Veiðileyfi hafa ekki verið dýr í Kleifarvatni þegar þau hafa verið til sölu á annað borð. Síðast er við vissum voru þau föl í Veiðibúðinni við Lækinn í Hafnarfirði. Ef þeir félagar eru ekki að selja þau lengur má nokkurn veginn ganga út frá því að þeir hver hefur tekið við af þeim....

 Kleifarvatn er sniðugur “skreppi”-kostur. Þar er ægifegurð, veiðivon góð og veiðileyfið ódýrt.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica