-Þarna var allt fullt af laxi-
Einn af mörgum gullfallegum fluguveiðistöðum Selár. Mynd gg.
Þegar talað er um Selá, dettur flestum í hug Selá í Vopnafirði og í sjálfu sér ekki að ástæðulausu. En það er önnur Selá fyrir austan, Selá í Álftafirði. Og eins skringilega og það hljómar, þá er einnig til Hofsá í Álftafirði, rétt eins og í Vopnafirði. Selá er kannski engin Selá að aflamagni til, en eigi að síður er Álftafjarðar-Seláin afar sérstök og skemmtileg laxveiðiá. T-VoV ræddi við Ólaf Vilhjálmsson, einn þriggja leigutaka árinnar, en SVFR er nú með ána í umboðssölu.

Ólafur er sjómaður úr Breiðholtinu og hann segir fullum fetum, að það hafi verið stangaveiðiparadísin á Austfjörðunum sem fékk hann til að vilja setjast að á Höfn í Hornafirði. Á sama tíma og öll veiðivötn eru meira og minna umsetin á Suður-Suðvestur og Vesturlandi, þá eru endalausir möguleikar á skemmtilegheitum á Austfjörðum. Lax, sjóbirtingur, sjóbleikja, staðbundinn silungur, nefndu það, þetta er allt til á þessum slóðum og nóg pláss.
Ólafur Vilhjálmsson. Mynd gg.
Selá er sem sagt í Álftafirði. Ritstjóri skoðaði ána í einn dag sumarið 2006. Var fremur óheppinn með veiðihorfur, því þetta bar upp á ríflega miðjan júlí og áin búin að vera ofan í grjóti frá því löngu áður en að fyrstu laxa var von. Smá súldarvottur um nóttina hressti ána aðeins og strax voru komnir laxar í hylji sem ekki höfðu verið þar deginum áður. Við settum í fiska, en náðum engum á land. Eigi að síður heillaði áin okkur. Umhverfi hennar er eins og best gerist í Austfirskum fjalladal. Og veiðistaðirnir í stíl, hver af öðrum, hver öðrum fallegri. Þarna er aðeins leyft að veiða á flugu og áin ber það vel. Ólafur segir að „allur pakkinn” í fluguveiðinni virki, en menn virðist þó einna duglegastir að nota túpurnar, og þá mest Frances og Snældu. „Sunray-inn var sterkur sl sumar. Ég veiddi fimm eða sex laxa á hana og mikið ofboðslega er það gaman. Laxinn stundum að koma tvisvar-þrisvar með offorsi á eftir flugunni áður en hann negldi,” sagði Ólafur.

Skyggnst eftir laxi í þröngum gljúfrahyl. Mynd ÁG.
Ólafur fór fyrst til veiða í Selá fyrir 10-12 árum. Hafði þá heyrt að menn væru stundum að setja þar í lax. Hann fór þá nokkur skipti og veiddi fyrir rest lax og einhverja smáa sjóbirtinga. Snéri sér síðan að öðru og var ekki sérlega heillaður. En nokkrum árum síðar bárust þær fregnir að menn hefðu verið að veiðum í ánni, farið ofar með henni og séð mikinn lax og veitt vel. Þá stóð svo á, að Ólafur var ásamt Guðjóni Pétri Jónssyni og Birki Birgissyni, að leita að álitlegu svæði til að leigja. Þeir fóru á stúfana, en urðu fljótt þess áskynja, að þarna var „fullt af laxi” og að fleiri voru um hituna, „einir fjórir fimm til viðbótar voru að bera í víurnar við bændur og þá var bara að hrökkva eða stökkva. „Áin var ekki í útboði, en við bara gerðum bændum tilboð og þeir tóku því. Þetta var til tíu ára og eru þrjú þeirra sumra nú liðin,” segir Ólafur.
Fyrsta sumarið þeirra var 2004 og kom áin þeim þá skemmtilega á óvart. Hún var lítið stunduð, en gaf samt 108 laxa á tvær stangir. Og það var mikill lax eftir í ánni um haustið. Í fyrra(2005) gekk ekki eins vel. Þurrkar skemmdu hluta sumarsins, en það var þó eigi að síður mun minna af laxi, aðeins rúmlega 80 veiddust og það var lítið eftir um haustið. Sl sumar(2006) var „einkennilegt”, að sögn Ólafs, þurrkar vel fram í ágúst og göngur eftir því. En um miðjan ágúst tóku veðurguðirnir við sér og laxinn lét ekki á sér standa. Göngur voru góðar, metveiði náðist, 132 laxar, og mikið var eftir af laxi um haustið. Síðan má þess geta, að ferlið síðast liðið sumar var mjög á líkum nótum, þurrkar og lítið vatn fram eftir öllu sumri og lítið af fiski að ganga á meðan, en síðan rigning og góð skot um haustið.

Veiðilegur og gjöfull strengur ofarlega í ánni. Mynd ÁG.
Það kann að hafa hjálpað til við metveiðina, að þeir félagar settu niður sleppitjörn með 5000 gönguseiðum og var nokkuð um að lax væri á höttunum í hyljum fyrir neðan tjörnina. En náttúrulegi stofninn var líka sterkur ofar í ánni. Ólafur segir engin plön um að auka gönguseiðasleppingar, en hins vegar er annað í gangi og á döfinni. „Við höfum allan þennan tíma verið að bera sumaralin seiði í allar sprænur og læki upp um alla heiði. VMSt tók ána einu sinni út og fékk út að hún væri miðlungi góð fyrir laxauppeldi. En einna best voru búsvæðin sem við höfum nú verið að nýta fyrir þessi litlu seiði. Næsta sumar er möguleiki á því að við fáum fyrstu heimtur úr þeim sleppingum og þá er góður möguleiki að það komi inn nýtt svæði efst í ánni, ofan við lítinn foss sem hingað til hefur ekki verið veiðistaður. Þar fyrir ofan eru einhverjir fallegustu veiðistaðir árinnar, allt að ófiskgengum fossi nokkru ofar. Ef við náum þessu svæði inn með sleppingu kviðpokaseiða, þá gæti þriðja stöngin komið inn með tíð og tíma. Það er annars ekki markmiðið að troðfylla ána með gönguseiðasleppingum, aðeins rétt að treysta hana með þeim og gera hana síðan sjálfbæra ofan til. Það er aðeins veitt á flugu í ánni og engir kvótar. Verða ekki kvótar nk sumar. Þetta eru ekki svo margir sprengidagar. Algengast þetta venjulega tog, 1,2 eða 3 laxar á dag og svo eru menn að setja í og missa. Ekki mok, en vel nóg til að halda mönnum á tánum. Við munum þó skoða það með tíð og tíma hvort að nauðsynlegt sé að setja kvóta. Við erum hins vegar ekki spenntir fyrir V-S þó að við leigutakarnir sleppum sjálfir öllum laxi sem við veiðum í ánni,” sagði Ólafur.
Laxinn í Selá var mest eins árs sl tvö sumur, en sumrin tvö á undan var talsvert af boltafiski. "Sturla Gunnarasson kvikmyndaleikstjóri fékk þann stærsta sem ég hef séð dreginn úr ánni. Hann var hérna fyrir austan sumarið 2004 að taka upp Bjólfskviðu og átti einn frídag. Ég skaust þá með hann í Selá og hann setti í og landaði 16 punda fiski. Þetta er annars afar ljúf og einstaklega falleg á. Alltaf gaman að koma hingað hvort sem veiðist mikið eða minna. Það er oft stuð hérna. Kom hérna einn morgun með honum Súdda yfirgæd í Breiðdalnum. Áin að sjatna eftir vöxt og var mikil og með grænum lit. Við stoppuðum bara í tvo tíma og lönduðum sex löxum. Það er ekki hægt annað en að heillast af þessari fögru á,” sagði Ólafur að lokum.
