Sogið-Þrastarlundi …..var kominn í sjálfheldu og laxinn sleit

Veitt í Kúagili í suddanum í gær. Veiðimaður nálgast þarna neðri tvo klettana. Það þarf ekki löng köst þarna þó sjálfsagt sé að reyna þau líka. Hægt er að vaða dálítið út og með því að kasta aðeins niður fyrir sig verður komist hjá því að krækja flugunni í kjarrið eða lemja í klettana. Mynd gg.
VoV hefurverið á smá yfirreið um veiðilendur í Árnessýslu yfir helgina. Meiningin var að kíkja á nokkur svæði í Hvítá, en hún hefur verið afar skoluð vegna úrkomu. Einnig hefur Sogið verið í sigtinu, sérstaklega svæðin í Þrastarlundi og á Syðri brú. Við kíktum í Þrastarlund í gær.
Þrastarlundarsvæðið, þ.e.a.s. laxasvæðið er líkt og Syðri brú, first og fremst einn veiðistaður. Sá heitir Kúagil og er hann veiddur undir sama nafni Alviðrumegin líka. Þrastarlundasvæðið nær einnig niður á Breiðuna frægu beint undan söluskálanum, en miklu mun vænlegra er þó að veiða þann stað frá Alviðru. Það er því fyrst og fremst Kúagilið sem kallar.

Til að komast að veiðisvæðinu er ekinn slóðinn inn að tjaldsvæðinu í Þrastarskógi, en sá vegur greinist inn í skóginn rétt ofan við sjoppuna. Bílaplan með grárri möl er næst ánni og þaðan liggur slóði niður að ánni og er Kúagilið beint þar niður af. Þarna rennur fljótið með þungum straum og sniðugt er aqð byrja að kasta út af lágum kletti sem liggur fram í ána. Veiða síðan jafnt og þétt niður breiðuna. Þegar menn byrja að sjá í ljósar skellur í botni nokkru ofan við tvo lága kletta til viðbótar, þá má segja að svæðið fari hitnandi og vænlegt getur verið að veiða alveg niður fyrir þá og ofan í brotið sjálft. Kúagil frá Alviðru er voðalegt hyldýpi, en Þrastarlundamegin er þetta ekki djúpur staður og svo virðist sem laxinn gangi þarna upp flúðirnar og stoppi í stuttan eða lengri tíma áður en hann heldur ofar. Þetta virðist sum sé vera “göngustaður” fremur en breiða þar sem lax liggur alla vertíðina, en við ætlum þó ekki að fulllyrða neitt slíkt, sú er einfaldlega reynsla okkar af staðnum.
Ritstjóri kom nú í Þrastarlund í fyrsta skipti í allnokkur ár. Fyrrum skrapp ég nokkrum sinnum þarna og oftar en ekki nældi undirritaður í 1-2 laxa. Kom þarna t.d. eitt sinn og missti lax á svarta Frances túpu í fyrsta kasti framan af efsta klettinum og landaði síðan glæsilegum grálúsugum 8 punda hæng á Hairy Mary nr.12 rétt fyrir ofan sjálft brotið. Öðru sinni kom ég þarna við annan mann og landaði 12,5 punda hæng á Green Highlander nr.6 eftir harða glímu og félaginn veiddi 5 punda hrygnu á spón. Þarna hafa gerst ævintýri, t.d. sagði Árni Baldursson mér eitt sinn frá því að hann hefði sett í 20-plús lax á smáa flugu rétt ofan við brotið. Þeirri viðureign lauk klukkustundu seinna við brúna hjá Þrastarlundi þar sem Árni var kominn í sjálfheldu og laxinn sleit..

Mikið blómskrúð gleður augað við Sogið í þrastarlundi, eins og þessi fjalladalafífill sem vex heldur óvenjulega uppúr hraunmölinni. Mynd gg.
Í gær var lax á svæðinu og við fengum frekjulega töku á Sunray með keilu. Hann festi sig hins vegar ekki og kom ekki aftur. Svæðið hefur verið illa stundað en þó hafa nokkrir laxar veiðst þar að undanförnu þó að Sogið hafi í sjálfu sér verið fremur tregt í gang. Nokkur sett af hreistri á hraunmölinni voru til vitnis um að menn hafa verið að lenda í skemmtilegum málum í Þrastarlundi að undanförnu. Við heyrðum t.d. af tveimur félögum sem skruppu að kvöldi til og settu í tvo, náðu a.m.k. öðrum þeirra. Hreistursýnin í mölinni voru hins vegar mun fleiri.
Það var gaman að rifja upp kynnin af Þrastarlundasvæðinu. Þetta er ekta staður til að skreppa í eftir vinnu þegar veiðibakterían þjakar mann illa. Taka svona 2-3 tíma í að renna nokkrum flugum yfir Kúagilið og svo spún í restina ef menn eru á þeim buxunum. Maðkveiði hlýtur hins vegar að vera eindæma leiðinleg á þessum stað en menn eru kannski ekki sammála því. Og ef ekki er laxinn, þá er umhverfið þarna svo magnað að það eitt og sér stendur undir heimsókninni. Mikið blómskrúð með bökkum og í skóginum, sem gefur auk þess þungan ilm í vætu. Mikið og fjölskrúðugt fuglalíf prýðir og svæðið. Við fengum t.d. bæði straumönd, álft og fýl syndandi upp og niður veiðistaðinn! En við erum að fara í Syðri brú á morgun og munum segja frá þeirri heimsókn. Athugum þá líka hvort að ástandið á Hvítá hafi skánað.
