votnogveidi_Fors_2009-05

veiðistaðakynning

0025

Vífilstaðavatn er frábært veiðivatn - 1.4.2008

Vífilstaðavatn er eins og vasaútgáfa af Elliðavatni og bæði hugnast mörgum betur minna svið og þar fyrir utan eykur vatnið fjölbreytnina á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er lítið vatn, aðeins um 0,27 ferkm að flatarmáli og er jafnvel vorveiðivatn númer eitt á Íslandi, því þar má hefja veiðiskap 1.apríl núorðið á meðan menn þurfa að bíða eftir 1.mai í Elliðavatni.

 
Ulfljotsvat-Edda-Maria-Crop

Úlfljótsvatn leynir verulega á sér - 1.4.2008

Stangaveiðimenn í nágrenni höfuðborgarinnar hafa úr svo miklu að moða þegar kemur að því að velja vel boðlega silungsveiði, að það hálfa væri nóg. Nægir að nefna Þingvallavatn, Elliðavatn, Vífilstaðavatn, Meðalfellsvatn o.s.frv. o.s.frv. Einhverra hluta vegan eru þeir fáir sem vita af Úlfljótsvatni, en segja má að það sé beinlínis, bókstaflega, í skugga Þingvallavatns, sem tekur lengi við vegan stærðar, en sannast sagna, þegar ekið er með Úlfljótsvatni, þá eru yfirleitt fáir að veiða og stundum enginn. En samt er þetta vatn fullt af fiski, vænum fiski í bland?. og þar er mikil náttúrufegurð.
 
0025

KLEIFARVATN LEYNIR Á SÉR - 11.4.2005

Kleifarvatn leynir á sér. Þetta stóra dularfulla stöðuvatn á Reykjanesskaganum austanverðum sem ýmist hækkar í eða lækkar eftir jarðhræringum hverju sinni. Skemmst er að minnast að það lækkaði vatnsyfirborð vatnsins um allt að 5 til 6 metra eftir Suðurlandsskjálftana árið 2000. Á þurrt voru komin lítil jarðhitasvæði, en vatnið bunaði ofan í sprungur sem opnuðust á botni vatnsins í hamförunum. Annars er þetta vatn um 9 ferkílómetrar að flatarmáli og þegar full vatnshæð er vatnið með dýpstu vötnum landsins, rúmlega 90 metrar mest.

 



Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica