Mögnuð og ólíkleg veiðisaga!
Við rákumst á dögunum á fremur óborganlega veiðisögu í leiðsögubók Sigmars Ingasonar um Geirlandsá. Af sögunni má ráða að ráðlegt sé að losa afar gætilega úr festum, ekki aðeins til að hlífa stönginni við ótímabæru broti, heldur.....
...jú heldur gæti festan breyst í eitthvað allt annað. Sagan var svona og hún er stutt þótt hún sé góð. Feðgar voru á ferð við svokallaðan Breiðtorfuhyl, sem er næst efsti veiðistaður neðan við gljúfrið mikla í Geirlandsá. Sé áin væð, þá þykir það góð latína að vaða af eystri bakkanum, þar sem jeppaslóðin liggur, yfir á vesturbakkann. Þar er eyri, en hár bakki að austan. Það er því í alla staði betra að eiga við hlutina frá eyrinni að vestan.
Sá eldri byrjaði og var með spinner. Eftir fá köst sat sá spræki spinner fastur í steini nærri austurbakkanum. Eftir að hafa rykkt og togað um stund, án þess að það tækist að losa, taldi sá eldri að frekar bæri að fórna veiðistaðnum en spinnernum og bað hann því son sinn að vaða til baka og komast að spinnernum og kippa honum uppúr, hann hlyti að komast mjög nærri honum frá austurlandinu. Sonurinn óð nú yfir neðan við hylinn og rölti upp eftir austurbakkanum, en þar eru menn afar nálægt veiðistaðnum og innan skamms sá strákurinn hvar glampaði af og til á spinnerblaðið, enda var pabbi gamli alltaf að kippa og toga af og til. Jú, ekki bar á öðru, þarna var spinnerinn fastur í grjóti og ekkert á leiðinni að losna. Er strákurinn átti örstutt eftir að staðnum þar sem spinnerinn glampaði skammt frá landi, brá honum í brún er hann sá skugga þjóta úr hylnum og að spinnerblaðinu. Það leyndi sér ekki að þarna var fallegur birtingur á ferð og sekúndubroti seinna var spinnerinn laus....úr grjótinu, en jafn vel enn fastari í kjafti fisksins. Fylgdist nú drengurinn með karli föður sínum þar sem hann þreytti fiskinn og landaði farsællega. Hann hélt því spinnernum eftir allt saman og vænum birtingi í kaupbæti!
Þetta er skemmtileg saga og við munum ekki eftir að hafa heyrt sögu af nákvæmlega sama meiði fyrr. Það er annars margvíslegur fróðleikur um Geirlandsá og veiðistaði hennar í umræddri bók. Og veiðisögur krydda frásögnina. Þessa bók má nálgast á vef SVFK, www.svfk.is
Myndin að ofan er frá Geirlandsá, ekki þó Breiðtorfuhyl, heldur Mörtungunefi, sem er talsvert neðar í ánni.
