Loksins líf eftir tvo mánuði

Sex pundari. Myndir eru allar frá Degi Árna. Á þeirri neðstu má sjá fluguna Senyo's Ice Man Minnow....
Það er alltaf ánægjulegt þegar lesendur stinga niður penna og senda okkur efni sem er birtingarhæft! Dagur Árni Guðmundsson er búsettur í Kaliforníu og þar veiðir hann stálhausinn þegar færin gefast.

“Þriðja janúar 2010 fór ég í litla á sem heitir carmel river, sem rennur í gegnum litla bæin sem ég á heima í. Fiskarnir sem veiðast í Carmel ánni eru aðalega steelhead (stálhaus) og regnbogasilungur. Síðustu árin hefur steelhead stofninn hrakað mjög mikið, árið 1990 gengu í ána yfir þúsund fiskar, en árið 2006 gengu bara 169 fiskar í hana. En nóg með það, ég var búinn að fara í hana nokkrum sinnum áður, en aldrei fengið neitt. En það var búin að vera rigning fyrir nokkrum dögum, og vatnið í ánni fallegt. Ég kom að ánni kl.8 um morgunin og byrjaði að veiða með rauðri latex púpu og copper john sem dropper, og setti eitt hagl á milli þeirra.
Ég byrjaði að veiða mig niður eftir göngubrú sem er þarna á svæðinu. Ég var búinn að veiða í circa tvo tíma þegar ég kom að fallegum hyl og streng fyrir neðan hann. Ég skipti frá púpunum yfir í græna Senyo's Ice Man Minnow nr.8 og kastaði henni aðeins fyrir ofan mig og lét hana reka niður fyrir. Eftir nokkur köst fékk ég þunga töku og ég brast rétt við og var komin með sterkan steelhead á!!

Fiskurinn tók rokuna niðureftir og ég elti, það er svoltið erfitt að elta fiska þarna útaf trjánum, en ég komst niður eftir og eftir svona tíu mínutna bardaga var ég búinn að landa svona sex punda steelhead! Þetta var einn fallegasti fiskur sem ég hef fengið. Eftir myndatöku sleppti ég fiskinum. Ég færði mig uppeftir aftur og kastaði aftur. Ekkert fékk ég meira á þessa flugu, og skipti um flugu og setti á Black Sheep hálfs tommu túbu með rauðri keilu. Ég kastaði henni eins og ég hafði kastað hinni fluguni, og eftir nokkur köst var annar steelhead á!! Þessi tók ekki eins miklar rokur og hinn, en var aðeins sterkari! Eftir nokkrar mínutur landaði ég silfurbjörtum, lúsugum steelhead! Þessi var svipuð stærð og hinn, eða um sex pund. Ég sleppti þessum aftur, og fór að kasta aftur. Dagurinn endaði á því að ég setti í sjö fiska, og landaði fjórum. Hinir tveir fiskarnir sem ég tók voru í kringum pundið og tóku black sheep.
Eftir að ég var búinn fór ég að skrá fiskana í veiðibókina, og þetta voru þá fyrstu fiskarnir sem veiddust í ánni þetta veiðitímabil! Veiðitímabilið opnaði 14 nóvember, þannig að það hafði ekki verið fiski landað í tæpa tvo mánuði! Steelhead veiðin er erfið og ég veiddi tvo fiska í mars, en oftast fór ég heim með öngulinn í rassinum. En þetta er mjög skemmtileg veiði og allir fiskar sem maður veiðir eru sterkir og fallegir.”
