votnogveidi_Fors_2009-02
veiðsagan

Green Highlander og Hornhylurinn

24.2.2010

 

Gunnar Már með fyrsta flugulax úr Langá 2009

Sögumaður okkur, Gunnar Már Hauksson með fallegan smálax í opnun Langár s.l. sumar. Mynd Einar Páll Garðarsson.

Það rifjaðist upp fyrir okkur nýverið gömul og virkilega hugguleg saga. Við sátum nokkrir og töluðum um eftirlætisflugur og einn í hópnum hafði mikið dálæti á Green Highlander. Þá mundum við eftir þessari sögu...

Green Highlander

Það var Gunnar Már Hauksson sem sagði okkur þessa sögu af föður sínum Hauki Þorleifssyni, en Haukur heitinn var einn hinna merku manna sem stóðu að nánast endalausum stigabyggingum í Langá.

Green Highlander. Mynd Hilmar Hansson.

Á nærfellt þrjátíu árum byggði hópurinn hvern laxastigann af öðrum með þeim árangri, að í dag er Langá ekki aðeins ein jafn besta laxveiðiá landsins, heldur virk sem laxveiðiá alveg upp að Langavatni. Hefur mörgum erfiðum hindrunum verið rutt úr vegi með elju, þekkingu og fórnfýsi. En við gefum Gunnari orðið:

”Uppáhaldsveiðistaður föður míns í Langá var Hornhylurinn og uppáhaldsflugan var Green Highlander.  Toppurinn hjá honum var að veiða í Hornhylnum á Green Highlander.  Einu sinni sagði pabbi frá því að hann hafi verið að veiða í Hornhylnum.  Regnbogi blikaði þar í nánd.  Skyndilega færðist regnboginn yfir hann svo að hann stóð undir regnboganum!   Faðir minn var nú enginn ruglukollur og raunsæismaður að eðlisfari.  Það kom mér því á óvart hvað hann stóð fast á því að þetta hafi verið svona.  “Þetta er fræðilega ómögulegt” sagði ég, en honum varð ekki haggað, svona var þetta.  Eina skýring mín er sú, að hann hafi dreymt þetta og draumurinn verið svo skýr í huga hans að honum hafi fundist hann vera veruleiki. 

Sagan var alþekkt í fjölskyldunni en virðingin fyrir gamla manninum var slík, að þetta var ekki haft í flymtingum. Það var svo mörgum árum eftir lát pabba að við Hörður sonur minn vorum að veiða í Hornhylnum.  Ég var búinn að fara yfir hylinn með flugu og óð í land.  Hörður beið á bakkanum tilbúinn að taka við.  Þá er mér litið upp eftir ánni.  Þar blikaði regnbogi yfir Sveðjukoti og Sveðjukletti.  “Sjáðu regnbogann” sagði ég við Hörð og við brostum báðir kankvíslega.  “Hvaða flugu ertu með?” spurði ég.  Hann opnaði lófann.  Hann hafði hnýtt Green Highlander á tauminn.



Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica