votnogveidi_Fors_2009-04
veiðsagan

Sögur frá sumri: Loftfimleikar í Álftá

31.1.2010

 

 Dagur með einn úr ÁLftá

Myndin kemur sögunni ekkert við að öðru leyti en því að hún er frá Álftá. Það er Dagur Garðarsson sem er þarna með fallegan smálax úr Hrafnshyl.

Við erum að finna það út að menn og konur eru ekkert sérlega æst í að skrifa fyrir okkur Sögur af sumri, en sumir eru til í veiðisögu ef að nöfnum er sleppt….stundum veiðistað. Hér er Saga frá sumri, hún er frá Álftá á Mýrum, en sögumaður vill ekki vera nefndur.

Við sjáum því um endursögn. Þetta gerðist fyrri hluta ágúst og það var orðið djöfull lítið vatn. Samt allt í lagi, menn höfðu séð það verra. Lítið samt. Mjög lítið.

53 - Þessir 2 lágu á bakkanum!

En það var lax um alla á og talsvert streð að fá tökur. Rétt fyrir ofan Hrafnshyl er gamall veiðistaður sem heitir Pottur og hefur verið óvirkur vegan breytinga á rennsli árinnar í all nokkur ár. Þetta var frábær veiðistaður á sínum tíma. Þeir sem þekktu hann þá kíkja gjarnan til að sjá hvort að hann sé dottinn í gang eður ei. Þarna rann áin jafn skipt um hólma, mættist aftur og myndaði kvörn og fallegan spegil ofan við risastóran hnaus í botni. Svo breyttist rennslið og mest af ánni fór í eystri kvílsina og þá var staðurinn búinn að vera.

Einn vildarvinur Pottisns kíkti s.l. sumar. Það var allt við það sama, en viðkomandi gekk ofar með ánni. Stuttu ofar eru ármót þar sem Álftá kemur úr vestri og Veita ofan að. Lax gengur upp báðar kvíslar og víða eru veiðistaðir þó að áin sé orðin æði vatnslítil þarna upp frá. Okkar maður fór upp eftir þegar hann sá að Potturinn var enn ónýtur labbaði hann aðeins upp eftir, upp fyrir ármótin og fann þá nokkra laxa sem lágu við stein.

Þeir voru 8-10 og voru líklega að doka við á göngunni. Hann hafði aldrei séð lax þarna áður og þetta var ekki sérlega veiðilegur staður. Um haustið kom hann t.d. þarna aftur og þá var enginn lax þarna. Þá var mun meira vatn í ánni. En hann gat komið sér í stellingar og eins og landið lá þá var þetta draumastaður fyrir hitsara.

Út fór hitstúpa. Tvö köst og tveir 5 punda laxar, báðir hængar og okkar maður ekki hissa á því að þeir voru nýjir, þarna var ekki “legustaður”. Eftir þessa tvo reyndi okkar maður nokkrar flugur enn, bæði hitsaðar og ekki hitsaðar. Ekkert gekk. Þá greip hann til gamals ráðs sem gaf honum oft á árum áður. Hann smellti undir Muddler, í þessu tilviki hvítum á tvíkrók númer 6.

Það sem gerðist í framhladinu var það sem gerist í draumum…..í fyrsta kastinu skautaði flugan yfir og 5 punda lúsug hrygna kom upp úr, bókstaflega stökk upp úr og tók fluguna á niðurleiðinni. Veiðimaður var agndofa að horfa á þetta, vissi síðan ekki hvort hann brást rétt við, en laxinn var á og stuttu seinna landaði hann þrija laxinum. Sá fjórði kom nákvæmlega eins, stökk uppúr ánni og flugan tekin á niðurleið!

Það átta sig allir á því, að eftir svona uppákomu þarf ekki mikið annað að gerast á heilu veiðisumri til að veiðimaður líti um öxl og hugsi sem svo að vertíðin hafi verið góð.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica