votnogveidi_Fors_2009-05
veiðsagan

Sögur af sumri: Mögnuð frumraun í Kjósinni

29.1.2010

 Arnór Ísfjörð með lax úr Laxá

Arnór með einn fallegan úr Símastreng í Bugðu.

Hér er ný Saga frá sumri frá lesanda okkar Arnóri Ísfjörð Guðmundssyni úr Snæfellsbæ, en hann fór s.l. sumar í sína fyrstu veiðiferð í Laxá í Kjós, ásamt frænda sínum Friðriki Kristjánssyni. Óhætt er að segja að Kjósin hafi tekið vel á móti þeim frændum og auðvelt að sjá að þetta hafi verið sagan þeirra frá sumrinu.

Arnór segir nú frá: “Það var á laugardagsmorgni að ég rauk á fætur og áttaði mig á því að aðeins nokkrir tímar væru  í það að við félagarnir stæðum á bakka Láxár í Kjós og það í fysta sinn. Það var á mörkunum að ég gæti hellt uppá kaffi vegna spennings og skjálfta, en fyrir rest þá hafðist það og þambaði ég kaffið einsog enginn væri morgundagurinn. Það er alveg ótrúlegt og nánast ólýsanlegt hvernig þessi spenningur verkar á mann og stundum veit maður ekki hvort um stress eða einhvað annað að ræða.

Arnór Ísfjörð

Hér þreytir Arnór lax sem mun vera sá sami og á myndinni að ofan.

Veiðitaskan fékk engann frið því maður margtjekkaði á því hvort allt væri ekki á sínum stað og hvort allir hlutir væru ekki í lagi. En hvað um það, við félagarnir höfðum ákveðið að hittast við veiðibúð í Rvk og taka svona nett rölt í gegnum hana sem endaði með því að við fórum þaðan hlaðnir af flugum og græjum og alltaf magnaðist spennan. Svo kom að því að við lögðum af stað uppeftir og enn var spennan í hámarki og voru margar veiðisögurnar sagðar á þessum 40 mínótum sem við vorum á leið uppí Kjós.

Arnór Ísfjörð/Friðrik

Friðrik með einn nýgenginn úr Klingenberg.

Við komum í veiðihúsið og stígum þar inn og fengum frábærar mótökur fra honum Gylfa staðarhaldara og ekki skemmdi það að Klaus Frimor var með okkur á svæði að gæda einhvern Dana. Allt var komið á fullt, stangirnar flugu saman, búið að draga um svæði og ekkert annað eftir í stöðunni en að halda á veiðar.

Arnór/Friðrik

Hér er Friðrik að kljást við lax á breiðunni neðan við Hvassneskvörn þar sem þeir félagar rótuðu upp sjö í beit og misstu marga.

Kvöldvaktin var frekar róleg, en þó fengum við einn í Bugðu. Næsta morgun vorum við komnir á bakkann kl sjö og fengum fjóra á þeirri vakt. Þegar klukkan var fimm mínútur í hlé vorum staddir í Kvíslafossi og það var ekkert að gerast. Þá tókum við ákvörðun um að bruna uppí Klingingbergbreiðu og ég steig útúr bílnum þrjár mínútur í eitt og hljóp útí og fekk fisk í fysta kasti. Dreif hann í land og kastaði strax aftur og þá tók annar. En ég missti hann og allt gerðist þetta á fjórum mínútum. Þetta var alveg magnað dæmi.

Kvöldvaktin gaf tvo í viðbót, en morguninn eftir lentum við í algeru moki á einhverri breiðu fyrir neðan Hvassneskvörn og tíndum þar upp sex laxa og misstum annað eins. Næsta skot sem við fengum þann daginn var í Klingennberg breiðu en þar tókum við fjóra í beit og síðasti morguninn var flottur en þá áttum við Bugðu og tókum fjóra í beit fyrir neðan brúnna og svo eina 78 cm hrygnu í Golfstraum. Túrinn endaði í 23 löxum og og við misstum alveg helling og fengum að auki fullt af tökum. Það má segja að þetta hafi verið glæsilegt hjá okkur, þar sem þetta var í fyrsta skipti sem við veiddum í Laxá í Kjós.”




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica