Sögur frá sumri: Stórlaxar í Langá!
Hjálparkokkur búinn að grípa laxinn í flæðarmálinu.
Hér kemur næsta frásögn í veiðisögusafni okkar, Sögur frá sumri, og er það Ólafur F.Finnbogason, leiðsögumaður við Langá á Mýrum sem rifjar upp skemmtilega minningu frá síðustu vertíð. Ólafur hefur nú orðið:
“Í byrjun ágúst var ég við leiðsögn í Langá með franska feðga. Þeim gekk vel en hlökkuðu mikið til þess að komast í Miðfjörðinn enda höfðu þeir heyrt þær ótrúlegu tölur sem voru að koma uppúr henni það sem liðið var af sumrinu. Einnig hafði Rafn leigutaki sagt þeim frá stórlöxum á sveimi í Miðfirðinum. Eins og flestir þekkja er Langá á Mýrum ekki þekkt fyrir stórlaxa og ekki sjást þeir þar oft.
Veiðimaðurinn sjálfur búinn að taka málin í sínar hendur, bókstaflega.
Sonurinn hafði veitt vel og faðir hans ágætlega. Við áttum neðsta svæðið í Langá eftir hádegið frá kl. 7-10 og voru menn að vonum spenntir enda hafði mikið verið af smálaxi að ganga. Við komum á neðsta svæðið rétt fyrir klukkan 7 og þá voru veiðimenn á móti okkur að ganga úr Strengjunum sem voru eins og oft áður á þessum tíma besti staðurinn. Þeim hafði gengið ágætlega en voru búnir að vera í hylnum í tæpa 2 tíma. Ég setti pabbann á Breiðuna sem hafði gefið vel þetta árið og virtist vera að nálgast fyrri styrk, en ákvað að fara með strákinn í Kerstapafljótið sem er fyrsti veiðistaður fyrir ofan Skuggafoss. Þetta er staður sem er alltof lítið veiddur en geymir oft mikið af fiski og veiðist í honum allt tímabilið, enda virðist mikið af fiski hrygna þar á veturna.
Sá franski sýnir laxinn sinn stoltur.
Við fórum yfir ána fyrir ofan brotið og veiddum frá vesturbakkanum. Við sátum á bakkanum og ég var að benda honum á nokkra staði þar sem fiskurinn liggur. Einnig vorum við að spjalla um hin ýmsu mál og meðal annars vorum við að ræða það sem lá okkur efst í huga, en við báðir vorum að fara eignast okkar fyrsta erfingja um veturinn. Strákurinn talaði um að hann hlakkaði til að fara í Miðfjarðará og fá einn stóran lax, enda væri nú ekki mikil von á því í þessari á. Ég sagði honum frá því að allt sumarið væri mjög vænn fiskur búinn að liggja á brotinu við stóru klöppina, nær bakkanum austanmegin. Hann hló og sagði að alltaf værum við leiðsögumenn með lygasögunar á hreinu til þess að halda veiðimönnum við efnið.
Síðan byrjuðum við að veiða staðinn og var undir 2 tommu Sunray Shadow plasttúpa. Þegar strákurinn var að nálgast brotið sagði hann að nú kæmi örugglega stóri fiskurinn á eftir flugunni. Ég hló og gekk af stað til þess að kíkja á föður hans en þá heyrðist í mikil læti í vatninu og síðan öskur í stráknum. Vænn fiskur hafði kastað sér á fluguna á nákvæmlega sama stað og ég hafði sagt honum að ég hefði séð þann stóra allt sumarið (sem var satt), en þessi fiskur var ekki sá, enda silfurbjartur. Eftir dágóða baráttu landaði hann þessari gullfallegu 83 cm hrygnu og frétti ég það síðar að það hafi verið stærsti fiskurinn hans í ferðinni, enda er Langá þekkt fyrir STÓRLAXA.
Þess má geta að tveir fiskar komu sumarið 2009 sem voru yfir 90 cm, sem hefur ekki gerst frá því ég byrjaði við leiðsögn í henni og vonandi verða þeir en fleiri næsta sumar.”
Þar með lýkur Ólafur frásögn sinni. Fín saga og enn á ný hvetjum við lesendur til að róta í huganum og tína til skemmtilegt atvik frá síðustu vertíð. Mikilvægt er að tengd mynd, mega vera fleiri en ein, jafnvel æskilegt en ekki nauðsynlegt, fylgi og sendist til okkar í netfangið ritstjorn@votnogveidi.is
