Skrýtin tilviljun í bæjarsprænunum
Hér eru myndir, að ofan og neðan, teknar af Aroni sjálfum með farsímanum. Engin viðmiðun, en það leynir sér ekki að þetta er hinn myndarlegasti fiskur!
Eins og veiðimenn vita manna best, þá geta tilviljanir verið skrýtnar og veiðisögur svo ótrúlegar að hinar lognu blikna. Á þeim nótum hugsaði Aron Jóhannsson þegar hann var í Elliðaánum fyrir skemmstu og setti þar í fágætan fisk(fyrir Elliðaárnar) að stærð og burðum.
Hér er lýsing Arons á atvikinu og uppákomunni: “Ég sá að VoV var með umfjöllun um 90 cm hænginn í Korpunni á dögunum. Það er skrítin tilviljun að sama morgun setti ég í og landaði 90cm hæng í Mið-Mjóddum í Elliðaánum á rauða frances tungsten keilu. Viðureignin stóð yfir í 30-40 mínutur og var krókstórum hængnum sleppt að viðureign lokinni enda orðinn grútleginn en þó í góðum holdum. Ég var einn við veiðar, en án myndavélar. Var þó með farsímann á mér þannig að ég gat tekið mynd af höfðingjanum á bakkanum til sönnunar. Klikkaði bara á því að setja eitthvað vel mælanlegt við hliðina á honum, stöngina eða flugubox. En ég notaði flugustöngina til að mæla lengdina.
Skv. kvarða VMST hefði nýgenginn fiskur í þessari lengd átt að vera um 15 pund en ég tel að hann hafi verið í kringum 12-13 pund. En þyngdin skiptir ekki máli þar sem ég fékk stórkostlega viðureign við frábæran fisk á Sage stöng nr. 5 og 11 punda taum. Að fá svona fisk í Elliðaánum gerist bara einu sinni á ævinni!“
Hér fylgja myndir sem Aron smellti af höfðingjanum á dögunum. Og jú, skrýtin tilviljun að sama morgun veiðist einnig 90 cm hængur í Korpu. Einhverjum gæti dottið til hugar að laxinn hefði ætt í taugaáfalli niður úr Elliðaánum að viðureigninni við Aron lokinni og beint upp í kjaftinn á Korpu þar sem Sigurjón Þ.Sigurjónsson beið með maðkinn sinn dinglandi í Fossinum. Ef þessi fáránlega kenning um sama laxinn í báðum tilvikum ætti við rök að styðjast (sem hún á örugglega ekki!!!) þá væri óhætt að segja að ekki hafi tekið betra við hjá umræddum hæng, því Sigurjón var ekkert á þeim buxunum að sleppa löxum þennan daginn! En auðvitað er lang líklegast að þetta hafi bara verið tveir svona stórir laxar í þessum annars nærri hreinu smálaxaám og það hafi bara verið einstök tilviljun að þeir hafi verið dregnir á land sama morguninn og báðir jafn langir!
