Skemmtileg saga frá liðnu hausti

Hér er Sævar Örn með fiskinn í fyrra skiptið. Auðveldast er að sjá þetta á doppunum á tálknlokinu...
Við rákumst á skemmtilega og jafn framt kostulega veiðisögu á vef Mokveiðifélagsins nú í vikunni, hvernig hún fór fram hjá okkur í haust vitum við ekki. En sagan er þessi…

Hafsteinn með sama dýrið innan við hálftíma seinna....enginn vafi. Myndirnar eru fengnar af vef Mokveiðifélagsins...
Eins og sjá má af vef þeirra Mokveiðimanna, þá stunda þeir mjög Húseyjarkvísl og af myndefni má ráða að þeir standi sig gjarnan vel við veiðarnar í Kvíslinni. Svo var einnig þegar hópurinn var þar við veiðar í kring um 10.september. Í þeim túr bar talsvert á sjóbirtingi sem áin er ekki síður þekkt fyrir en laxinn og þá átti það sér stað að Sævar Örn Hafsteinsson setti í og landaði fallegfum birtingi. Notaði til þess Iðu, þekkta flugu úr smiðju Krafla.is. Var fiskinum sleppt eins og lög gera ráð fyrir í Húseyjarkvísl, en aðeins halftíma seinna var pabbi Sævars, Hafsteinn Harðarsson, að kasta í sama hyl og setti þá í og landaði flottum birtingi. Var honum einnig sleppt og fiskarnir auk þess báðir myndaðir eins og Mokveiðifélagsmenn gera jafnan við fiska sína.
En gefum þeim nú orðið: “Þegar heim var komið og menn fóru að skoða myndirnar betur mátti sjá að um sama fiska var að ræða. Allir vita að killerinn (Hafsteinn) er svakalegur veiðimaður og fiskarnir eru skíthræddir við hann en nokkuð ljóst er að Iðan er með skæðari veiðiflugum sem kostur er á ef fiskurinn er svo brjálaður í hana að hann tekur hana aftur eftir 15-30 mín.”
