Lítið ævintýri í Gufuá

Sveinn Ingi með smálaxinn sem var tekinn með heim. Myndir eru frá Gylfa Jón Gylfasyni.
Gufuá í Borgarfirði er svo mikil ræfill þar sem hún rennur undir Þjóðveg 1 að það hálfa væri nóg. En í henni er laxveiði. Og það veiðast meira að segja stundum stórir laxar þar!

Það var farið að rökkva, en þá taka þeir líka oft....
Í þurrkasumrum er Gufuá varla lækur. Hættir næstum að renna milli „hylja“ í versta falli. En neðsti hluti árinnar er af öðrum toga. Þar fellur hún um graslendi og hefur á löngum tíma garfið sig niður. Þar eru djúpir álar og þar heldur sig lax sem eflaust fer upp í ána þegar haustrigningar setja smá vatn í sprænuna. Þetta er töluvert af fiski, auk þess sem talið er að laxar úr öðrum ám í Borgarfirði kíki þarna upp á háflæði, því sjávarfalla gætir upp í neðsta hluta Gufuár. Þar voru lengi netalagnir, meira að segja eftir að netauppkaupin í Hvítá höfðu gengið eftir. Það voru net sem veiddu einhver hundruð laxa á vertíð, þannig að vissulega er talsverð laxgengd neðst í Gufuá.

Hængurinn pollrólegur í gróðrinum við landið, eða kannski dálítið dasaður eftir viðskiptin við drenginn!
Við fengum skeyti nýverið frá lesanda sem er duglegur að gauka að okkur efni. Sá heitir Gylfi Jón Gylfason og hann skrapp í Gufuá fyrir skemmstu. Gefur Gylfa orðið.
„Síðasti veiðitúrinn var skreppitúr í Gufuá í Borgarfirði með drenginn minn Svein Inga sem er átta ára og áhugasamur veiðimaður. Við lentum í ævintýri því strákurinn landaði 90 cm laxi sem reyndist vera stærsti laxinn úr ánni þetta árið. Sveinn Ingi landaði honum eiginlega alveg sjálfur utan að ég þurfti að losa frá honum slý þrisvar sinnum en að öðru leyti greip ég ekki inn í viðureignina sem byrjaði skrautlega því hængurinn straujaði strax og hann kenndi stálsins upp í harðaland og barðist þar um í smástund meðan við feðgar hlógum eins og vitleysingar.

Eftir að laxinum var sleppt dólaði hann við landið og drengurinn sat rólegur og beið þess að höfðinginn kveddi og forðaði sér.
Fiskurinn komst svo út í aftur og við tók slagur sem varði í tæpar 15 mínútur. Áður en kom að löndun var ég búinn að útskýra fyrir honum að veiðimenn slepptu svona stórum fiskum aftur í ána svo þeir gætu eignast afkvæmi sem væru líka stór. Hann samþykkti þetta glaður og fékk eiginlega alveg jafnmikið út úr því að hjálpa fiskinum að jafna sig áður en hann synti sína leið út í hylinn aftur. Það hjálpaði reyndar til að við vorum búnir að hirða smálax skömmu áður sem hann ætlaði sér að færa móður sinni.“
