Iðutröllið: 24 punda í síðasta kasti í fyrra, 20 punda í fyrsta túr núna

Hér er Alli með laxinn.
Við sögðum nýverið frá glæsilegum 20 punda hæng sem „Alli“ veiddi á Iðu í Biskupstungum með þeim formerkjum að lengi væri von á einum þar, en staðurinn er rómaður stórlaxastaður sem má muna sinn fífil fegri. Nú hefur Alli sent okkur veiðisöguna og hún er með skemmtilegri fléttu sem teygir sig til síðasta árs.
Við gátum þess að við vissum engin deili á Alla, en sendum honum svarpóst með þakklæti fyrir myndina og ósk um frekari upplýsingar. Svar barst nú í dag og hér er veiðisagan: „Klukkan var orðinn 20:30 og lítið að gerast og leiðindar hvöss og nöpur norðanátt búinn að blása mest allan daginn. Það voru komnir 2 laxar og nokkrir birtingar þegar að það fór að lægja og það lifnaði yfir ánni og menn voru að setja í laxa á öllum stöngum. Þó nokkuð líf og fallegt veður. Ég setti 1.5“ rauðann Fransis á, til sælla minninga notaði ég sömu flugu og í seinsta kasti síðasta sumars í Vatnsdalsá, þegar 24 punda trölli var landað í Rofabakka sem var seinasti lax sem ég veiddi það sumar en þetta sá fyrsti núna. En allavega, í öðru kasti tók fiskur sem var greinilega gríðalega öflugur og var þetta hrikalega skemmtileg viðureign sem entist í um 30 mín. Flugann er heil og hver veit hvað gerist næst þegar hún verður notuð hehe...“
