Breiðdalsá: Forréttindi að fá svona lax á línuna

Gunnar Örlygur með Maríulaxinn úr Neðri Beljanda sem glittir í að baki veiðimannsins. Mynd Halldór Ólafur Halldórsson.
Halldór Ólafur Halldórsson og veiðifélagi hans Gunnar Örlygur Gunnarsson voru fyrir skemmstu í Breiðdalsá en eins og allir vita þá hefur verið óvenjulega mikið af stórlaxi þar. Enda lentu þeir félagar í mögnuðu ævintýri eins og hér má lesa.
„Mátti til með að senda ykkur nýlega reynslusögu úr Breiðdal. Ég og Gunnar Örlygur Gunnarsson áttum 2 daga í Breiðdal 11 til 13. júlí s.l. fengum 5 laxa á stöngina frá 43 cm upp í 84 cm og misstum þó nokkra. Gunnar fékk maríulaxinn sinn og annan til með tilheyrandi ofsagleði.
Þegar við áttum um hálftíma eftir þar til við þurftum að leggja af stað til Egilsstaða í flug, setti ég í stærsta lax sem ég hef séð með berum augum á hits túpu í Prestastreng. Fyrst kom hann nánast allur uppúr með miklum látum en hitti ekki fluguna. Ég endurtók kastið og var takan ofsafengin þegar laxinn endurtók fyrri fimleika og réðst á fluguna. Laxinn lagðist síðan niður bak við stein þar sem hann hafði leigið áður og horfðum við á laxinn í dá góða stund meðan við vorum að jafna okkur á tökunni. Laxinn þumbaðist síðan í um 5 til 6 min án þess að taka rokur eða sýna neinn áhuga á bardaga, heldur dólaði hann sér rólega um hylinn líkt og hann væri að meta aðstæður vandlega og teikna upp hernaðarplan í kollinum. Skyndilega setti hann í tvöfaldan túrbó og var viðnámið við vatnið svo svakalegt við rokuna að hann sleit 15 punda taum þegar hann stökk uppúr. Svekkelsið hefur verið meira við að missa minni fiska því það eru forréttindi að fá svona lax á línuna og eiga svona baráttu í minningunni. Það mætti halda að þessi hafði haft mansvit enda var ég plataður upp úr skónum - en reynslunni ríkari þó.
Erfitt er að giska á stærð laxsins en við félagarnir tippum á vel yfir tuttugu pundum. Síðar fékk ég skammir frá Súdda staðarhaldara um að maður veiði ekki í Breiðdalsá með minna en 20 punda girni. Ég er nokkuð viss um að ég gleymi því ekki að ári en ég vona að einhver veiði stórlax með litla hitstúpu í kjaftinum síðar í sumar.
