Hvað er hægt að hafa mikið fyrir einum smálaxi?!

Frá Flekku 2006. Flugunni kastað. Mynd Einar Falur.
Veiðimaður einn sem var við veiðar í Flekkudalsá með fjölskyldunni í vikunni sagðist aldrei fyrr hafa séð viðlíka magn af fiski í ánni. Er það víst sama saga og aðrir sem eiga leyfi í ám á suð-vestur og vesturlandi hafa að segja þessa dagana. En þessi lenti í óvæntum svaðilförum - og veiddi sama laxinn tvisvar!
Veiðimaðurinn og sjö ára dóttir hans skildu eiginkonuna eftir í bílnum við fossasvæðið, frúin vildi leggja sig en feðginin gengu niður gilið, þar sem stígurinn liggur yfir klöngur og um kjarr, stundum nokkra metra yfir ánni.
Hjónin höfðu sett í sitthvorn laxinn í Fornastreng fyrr á vaktinni og nú átti að endurtaka leikinn. Það gekk eftir, í öðru kasti tók lax lítinn Undertaker - og þessi fiskur var á leið í eilífðarlandið. Dóttirin heimtaði að fá að halda stönginni, eins og þegar sett var í aðra fiska í ferðinni, og faðirinn sá um hjólið - og landaði laxinum síðan, 60 cm nýgenginni hrygnu.
Næst átti að veiða Torfunefsfoss en hylurinn var pakkaður af laxi. Óð faðirinn þá út á klett í miðri á en dóttirin fylgdist með af bakkanum.

Og lax hefur tekið fluguna. Mynd Einar Falur.
Fljótlega setti faðirin í lax en til að reyna að landa honum neyddist hann til að fara yfir á hinn bakkann. Heldur þyngdist brúin á þeirri sjö ára við það, enda komst hún ekki yfir og gat ekki haldið í stöngina. Eftir barning lak úr fiskinum og faðirinn fór aftur út á klettinn og kastaði í hylinn.
Aftur tók lax og aftur óð faðirinn yfir á bakkann fjær. Það var meira en dóttirin þoldi. Um leið og flugan hrökk úr laxinum sá faðirinn hvar dóttirin æddi upp klungrið og af stað eftir stígnum.
Föðurnum leist þannig á að dóttirin gæti farið séer að voða, öslaði yfir ána eins hratt og hann komst, greip dauða laxinn á bakkanum og hljóp upp stíginn á eftir dótturinni, kallandi á hana að hægja ferðina. En þar sem stígurinn liggur hæst yfir Flekkunni var það ekki dóttirin skapbráða sem datt, heldur rak faðirinn tána í stein og flaug á hausinn. Fékk hann sár á handleggin, sárkenndi til í hnjánum - og laxinn flaug í fallegum boga fram af klettinum og skall niður í árstrauminn fyrir neðan. Faðirinn brölti á fætur og aftur af stað niður stíginn, eins hratt og hann komst, draghaltur, óð út í ána og þar tókst honum einhvernveginn að veiða fiskinn upp úr ánni, í annað sinn.
Dóttirin skammaðist sín fyrir upphlaupið og fékk fljótlega að þreyta annan lax. Móðirin var aftur á móti vakin með laxi sem var slengt í framrúðuna - og hún átti einnig eftir að þreyta fleiri laxa á vaktinni.
