Uggar eru til margra hluta nytsamlegir
Vettvangur veiðisögunnar. Kvíslafoss í Laxá í Kjós. Mynd Heimir Óskarsson.
Veiðikona að nafni Guðrún Ólöf Hrafnsdóttir lenti í óvenjulegu ævintýri í Laxá í Kjós í morgun, er hún setti í fallegan fisk í Kvíslafossi. Þegar fiskurinn var kominn á land botnaði enginn í því hvernig fiskurinn hafði fest sig á flugunni.Gylfi Gautur Pétursson var viðstaddur og er til frásagnar.
„Það eru allir gáttaðir hérna og enginn botnar neitt í neinu. Guðrún gerði bara það sem átti að gera, hún var með flotlínu og Ally‘s Shrimp númer 16 og skyndilega var rifið í. Þetta reyndist vera ljómandi fallegur 5 punda sjóbirtingur, en þegar kom að því að losa fluguna úr fiskinum þá var engin fluga í kjaftinum á honum. Hún reyndist liggja utan í öðrum kviðugga fisksins og það var ekkert far eftir hana í kjaftinum. Engin merki sáust um að hún hafi nokkru sinni verið föst í fiskinum. Hins vegar var taumurinn lúppaður yfir kviðuggann og sat svo fastur þar að komið var far eftir hann við uggarótina. Þannig lá í því, en ég hef aldrei á löngum veiðiferli séð annað eins eða heyrt af slíku, að taumur nái slíku haldi á jafn tæpum og ólíklegum stað. En það var bálhvasst og þetta bara gerðist einhvern vegin. Guðrún var ósköp sátt við þetta, lýsti sig ánægða með að hafa veitt fiskinn án þess að þurfa að meiða hann í kjaftinum í leiðinni!“
Það var og og hér hefur sannast enn einu sinni að það er varla hægt að ljúga upp svo ólíklegri veiðisögu að sannleikurinn geti ekki toppað vitleysuna.
