Laxinn gerði vart við sig með óvenjulegum hætti!
Veiðimenn sem voru að veiðum í Eystri Rangá fyrir skemmstu lentu í ánni mjög gruggugri, en fengu eigi að síður að reyna að það er hægt að veiða þó vatn sé vel skolað. Nauðsynlegt er að finna hvar fiskurinn liggur við þær aðstæðurog umrætt atvik sýnir að hægt er að fara óhefðbundnar leiðir til að grafast fyrir um það.

Sem sagt, tveir félagar deildu stöng og þeir vissu að svæðið þeirra hafði verið að gefa í sumar. Það var því mikið af laxi á svæðinu. En hvar væri best að leita? Það kom í ljós með óvæntum hætti.
Frá Eystri Rangá. Mynd HÓ.
Það var þannig að annar félaganna óð út á þekktum veiðistað og byrjaði á því að þenja köstin þangað sem líklegast væri að laxinn væri við venjulegar kringumstæður. Ekki gekk það upp og vinurinn færði sig neðar, óð í vatni upp í mið læri. Þá brá honum illa við að eittvað snerti annan fótinn og svo var eins og hann væri sleginn í hinn fótinn. Áður en hann gat velt þessu nánar fyrir sér, stökk lax beins fyrir neðan hann og lenti á vöðlunum! Annað högg á stígvélin og enn hoppaði lax sem lenti á mjöðminni á veiðimanninum…..vinurinn bakkaði hratt til lands. Laxinn var fundinn. Næsta klukkutímann settu félagarnir í og lönduðu þremur löxum á þessum stað.
