….þá fékk ég næstum hjartastopp

Arnlaugur Helgason með urriðana góðu.
Arnlaugur Helgason lenti í ævintýri í Arnarfelli við Þingvallavatn í síðustu viku og sendi okkur mynd og línu. Hafi hann bestu þakkir fyrir og óhætt að óska honum til hamingju með aflann því glæsilegur er hann.
“Eins og vafalítið margir veiðimenn ákvað ég að skreppa í veiði eftir vinnu á þriðjudag enda veðrið glæsilegt. Ákvað að renna í Arnarfellið í Þingvallavatni enda lítið kíkt þangað í sumar. Ég keypti mér einn makríl í leiðinni og ákvað að prófa letingja með flugunni. Þegar ég kom í Arnarfellið skartaði náttúran sínu fegursta og veiðimaður sem ég hitti og hafði verið frá hádegi búinn að fá 8 bleikjur. Ég fékk 2 smáar bleikjur sem ég sleppti á Peacock og þrumaði svo makríl með sökku út í. Hann var varla kominn útí þegar strax var hafist handa við að narta í hann. Ég lét allt vera þangað til hann hafði bitið sig fastan og viti menn, stærðarinnar urriði tók við að stökkva út um allt og kláraði girnið af hjólinu mínu. Ég náði þó að lempa hann inn og þvílíkur fiskur þegar hann var komin á land, 6 punda gullfallegur urriði.
Að sjálfsögðu setti ég nýja beitu á og kastaði aftur út. Eftir smátíma var farið að eiga örlítið við beituna og ég dró hana til mín í rólegheitum og svei mér þá ef annar urriði renndi sér ekki á eftir henni og tók með látum. Þegar sá byrjaði síðan að stökkva þá fékk ég næstum hjartastopp enda þessi sýnu stærri en sá fyrri. Þessi viðureign tók dágóðan tíma og þegar hann var nánast kominn upp í harða land hélt ég að hann hafði fest girninð einhvers staðar og óð út í. Nei hann hafði einungis sest niður í rólegheitum og ég gat bara ekki bifað honum. Ég náði honum þó á endanum á land og svei mér þá ef ég hef nokkurn tíman séð fallegri fisk, 75 cm spikfeitur urriði sem við vigt daginn eftir jaðraði við 12 pund. Ég var frekar þreyttur að þurfa að bera þessi ósköp, ásamt 2 stöngum og veiðikassanum mínum upp í bíl. En ánægður var ég ...”
