votnogveidi_Fors_2009-05
Minnistæðast

DRAUMUR ÚT Í GEGN

1.4.2005

Gunnar Óskarsson formaður Stangaveiðifélags Keflavíkur er veraldarvanur stangaveiðimaður, kallar ekki allt ömmu sína í þeim efnum og hefur marga fjöruna sopið. Hann segir veiðisumarið hafa verið “draumur út í gegn fyrir mig og mína”, eins og hann komst að orði.




0013

Mynd eftir Einar Fal




Uppúr stendur rosalegur túr sem við Arnar bróðir fórum um haustið í Laxá í Dölum. Við vorum náttúrulega vongóðir, vorum að heyra fregnir af hrikalegum veiðitölum í ánni, en í hana höfðum við aldrei komið áður. Þegar við komum vestur var okkur tjáð af kunnugum, að gott vatn væri í ánni, en okkur fannst hún nú samt ekki vera neitt vatnsfall að ráði, enda vanir stærri vötnum eins og Hólsá, Stóru Laxá, Geirlandsá og Vatnamótunum. En áin var alveg lifandi af fiski og mikill lax út um allt. Hollið var með, ég man ekki, 125 eða 127 laxa og við Arnar þar af tæpa 20 sem við fengum jöfnum höndum á flugu og maðk. Við vorum með uppí 12 punda laxa, en hollið var með tvo 18 punda og þetta var nýr og leginn lax í bland. Óhemjuskemmtileg veiði.

- Við áttum margar góðar stundir á ferðum okkar, t.d. vorum með í hausttúr í Reykjadalsá í frábæru veðri og vatni, vorum með tuttugu laxa á tvær stangir á tveimur dögum. Lax um allt og við vorum að fá laxinn ótrúlega víða. Ég held ég fari rétt með að 11 eða 12 hyljir hafi gefið þessa 20 laxa. Við áttum einnig stórskemmtilegar stundir bræðurnir þrír og pabbi, í Köldukvísl í byrjun júní, þar sem við fengum alls 29 bleikjur, 3 til 5 punda, og allar á litlar púpur veiddar andstreymis. Svona minningar ylja manni ekki bara næsta vetur, heldur alla tíð,” sagði Gunnar og hlakkaði mikið til komandi vertíðar, 2005.






Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica