Örn Hjálmarsson deildarstjóri veiðideildar í Útilífi sagði okkur frá eftirminnilegasta atviki síðustu vertíðar í vikunni og er þar á ferðinni veiðisaga af því tagi sem allir eiga helst að lenda í a.m.k. einu sinni á ferlinum. Sagan gerist í Vatnamótunum á síðustu veiðidögum síðustuvertíðar, sem sagt í krinum 20.október. Þá voru Örn og vinir hans í brjáluðum fiski, og það var ekki smár geldfiskur sem oft er að veiðast á þeim tíma, heldur talsvert af stórum hrygningarfiski í bland, bjartur og flottur. En í kvöldhúminu dró til tíðinda og Örn hefur nú orðið:
Gunnar Óskarsson formaður Stangaveiðifélags Keflavíkur er veraldarvanur stangaveiðimaður, kallar ekki allt ömmu sína í þeim efnum og hefur marga fjöruna sopið. Hann segir veiðisumarið hafa verið “draumur út í gegn fyrir mig og mína”, eins og hann komst að orði.
Haukur Geir Garðarsson er einn af snjöllustu stangaveiðimönnum þessa lands og á ekki langt að sækja það, faðir hans Garðar heitinn Svavarsson, löngum kenndur við Kjötbúð Tómasar var sjálfur einn sá snjallasti sinnar kynslóðar og var hrein kennslustund að fylgjast með honum að störfum á bökkum vatnanna. Haukur Geir sagði okkur að það væri erfitt að gera uppá milli atvika frá síðasta sumri, svo fjörug og skemmtileg hefði veiðin verið.