votnogveidi_Fors_2009-02
gamli tíminnn

Meira um Björn og Bretana

31.1.2007

Eyrin á Brennu

Hafnarfjallið, reyndar séð frá Brennu, en það er sama svipmikla kennileitið þaðan séð eða frá Straumunum.

Á forsíðu vefs SVFR, www.svfr.is er þessa stundina skemmtileg frásögn úr fortíðinni þar sem sagt er frá tilurð og tilvist skoskra ánamaðka á Íslandi. Er textinn unninn úr grein í The Scotsman frá 18.9 1959. Með greininni sem skrifuð er af “Silver Doctor” er birt mynd af Birni heitnum Blöndal bónda, rithöfundi og einum merkasta stangaveiðimanni sem Ísland hefur alið. Er myndin höfð sem dæmi um að ekki væru allir Íslendingar maðkveiðimenn. Þetta var ekki í eina skiptið sem Björn var notaður sem sönnunargagn um að landsmenn væru flugutækir?.

Greinin í The Scotsman er sem sagt frá 1959 og af myndinni að dæma er hún ekki mikið eldri. Hins vegar var tekin mynd af Birni sumarið 1932,  27 árum fyrr, og ekki aðeins mynd, heldur einnig kvikmynd. Þannig var, að tveir enskir bræður,  Wenner að nafni, veiddu hér mikið og voru einkum við Svarthöfða og Straumana, auk þess að fara með Birni og fleirum í bergvatnsárnar og er m.a. til mögnuð og mergjuð veiðisaga af þeim, ásamt Andrési í Síðumúla, í veiðiför í Kjarrá. En eldri bróðirinn Max að nafni, var eins og margir heldri Bretar, í heldri manna klúbbi á heimaslóðum. Þar sagði hann vinum sínum frá ævintýrum sínum á Íslandi og mátti þar hlýða á yfirlýsingu manns sem fullyrti að ekki væri sá Íslendingur til sem kynni með flugu að fara. Hann var einnig véfengdur um að hafa séð kjóa veiða fugl á flugi. Max reiddist þessu og lagði undir að hann gæti sannað mál sitt og var það fastsett að hann kæmi sönnunargögnunum til skila að næstu vertíð aflokinni. Klúbbformaðurinn geymdi veðféð í læstri hirslu á meðan.

Max Wenner var auðvitað með Björn í huga. Björn var þá aðeins ungur maður, en vel fær fluguveiðimaður. Max sýndi félögum sínum myndir frá Straumunum og bað þá sérstaklega að taka eftir Hafnarfjalli sem kennileitis. Myndi það sama kennileiti prýða sönnunargögnin.

Þeir félagarnir Max og Björn voru ekki lengi að afla gagna um þekkingu a.m.k. eins Íslendings á fluguveiðum. Max var með góðar kvikyndagræjur á þess tíma mælikvarða og bað Björn um að kasta flugu og setja í laxa í Straumunum. Eftir stutta stud hafði Björn sett í og landað tveimur 16 punda löxum. Lét Max Björn síðan standa í fjöruborðinu með laxana dinglandi á fingrunum og Hafnarfjall í baksýn.

Verr gekk að mynda kjóa veiða fugl á flugi, enda allmiklu erfiðara verkefni og eyddu þeir vinirnir mörgum og löngum stundum við að fylgjast með atferli kjóa. Sátu um mörg óðul. Loks tókst Max þó að ná myndunum og hann vann veðmálið.

 






Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica