votnogveidi_Fors_2009-05

gamli tíminnn

Rivers of Iceland 6 Stewart

Íslenskir veiðimenn – úr bókinni Íslenskar veiðiár - 22.11.2011

Hið Íslenska bókmenntafélag hefur gefið út bókina Íslenskar veiðiár eftir R.N.Stewart hershöfðingja, í íslenskri þýðingu Einars Fals Ingólfssonar ljósmyndara og blaðamanns. Á frummálinu heitir bókin Rivers of Iceland og kom út um miðja síðustu öld. Hefur verið illfáanleg, en er nú komin á íslensku.

 
076 Presthylur er vænn veiðistaður.

Sagan af prestunum í Presthyl - 27.11.2008

Á hinu kyngimagnaða Nes-Árnes svæi Laxár í Aðaldal ere inn af helstu stórlaxastöðunum Presthylur, stór og mikill og laxarnir undir faldi hans í stíl. Nafn þetta á sér sérstaka og dulmagnaða sögu sem við hnutum um er við flettum fyrir skemmstu bókinni Á bökkum Laxár eftir Jóhönnu Steingrímsdóttur.

 
0005

Aldarspegill R.N Stewarts hershöfðingja - 18.2.2008

Það voru einkum efnaðir Bretar, gjarnan hershöfðingjar eða marskálkar sem hingað komu fyrstir til stangaveiða og voru sumir þeirra býsna snemma á ferðinni, jafnvel á seinni hluta 19.aldar. Þetta hafa verið miklar ævintýraferðir, langar skipaferðir hingað til lands, vegleysur og vesen til sjávar og sveita. Aðbúnaður alla vegana og óvissan oft mikil. Slíkar ferðir hafa bæði kostað mikið og krafist gríðarlegrar skipulagningar. Samt sem áður komu allmargir þessara manna hingað margítrekað og sumir voru hér fastagestir um langt árabil.
 
Eyrin á Brennu

Meira um Björn og Bretana - 31.1.2007

Á forsíðu vefs SVFR, www.svfr.is er þessa stundina skemmtileg frásögn úr fortíðinni þar sem sagt er frá tilurð og tilvist skoskra ánamaðka á Íslandi. Er textinn unninn úr grein í The Scotsman frá 18.9 1959. Með greininni sem skrifuð er af “Silver Doctor” er birt mynd af Birni heitnum Blöndal bónda, rithöfundi og einum merkasta stangaveiðimanni sem Ísland hefur alið. Er myndin höfð sem dæmi um að ekki væru allir Íslendingar maðkveiðimenn. Þetta var ekki í eina skiptið sem Björn var notaður sem sönnunargagn um að landsmenn væru flugutækir?.

 
0012

“FORN” FRÆÐI - 1.4.2005

Í fórum okkar eigum við stórmerkilega bók frá árinu 1929. Hún heitir Laxa- og silungaklak á Íslandi og er eftir Þórð Flóventsson. Fremst í bókinni lýsir höfundur efni hennar: Skýrslur um ferðir höfundar og framkvæmdir á árunum 1920-1927 ásamt fræðslu um lifnaðarháttu laxfiska hjer og erlendis.
 



Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica