votnogveidi_Fors_2009-03
fluguboxið

Skemmtileg hugmynd

28.5.2006

 

Veidihornid_fluga_04B

Túpa á einkrækju. Góð hugmynd fyrir þá sem ætla að sleppa laxi og/eða birtingi. Mynd HÓ.

Hér er hugmynd fyrir þá sem eru þannig þenkjandi að þeir vilji eða ætli að sleppa einhverju eða öllu sem þeir veiða af laxi í sumar, en það er alkunna að stundum getur verið erfitt að losa þessar smáu þríkrækjur úr kjöftum laxa án þess að rífa allt í hengla. Það var Óli í Veiðihorninu sem læddi þessu að okkur.

Veidihornid_fluga_04

“Öngullinn aftan í túpunni er ný gerð hnýtingaöngla frá Scierra. Það er nýtt að Scierra sendi frá sér öngla en hér er um hágæða öngla að ræða sem eru framleiddir hjá Partridge.

Þegar menn veiða þar sem ætlast er til þess að fiski sé sleppt til að mynda í sjóbirtingsveiði að vori eða í laxveiðiám á borð við Vatnsdalsá eru einkrækjur tvímælalaust besti kosturinn.  Sjálfur hef ég stundum notað B800 straumfluguöngul frá Kamasan aftan í túpur en þessi nýi Saltwater öngull frá Scierra hentar betur þar sem hann er “wide gape” þ.e. með miklu bili á milli öngulodds og leggs.  Þetta er því tilvalinn öngull aftan í búkþykkar túpur á borð við Snældur, Rocket og Frances.  Frances túpan á myndinni  er sólgul og ein af fjölmörgum litum sem Francesflugurnar verða boðnar í í Veiðihorninu í sumar,” sagði Óli.

 Þess má geta, að áður hafa menn verið teknir til við að nota tvíkrækjur frá Loop í þessu sama skini, en hér er gengið skrefinu lengra og öngullinn orðinn einn í stað tveggja…..í stað þriggja. Ætli menn hins vegar að drepa aflann sinn og fara með heim og snæða, þá er líklega farsælast að halda sig við þríkrækjurnar gömlu og góðu.






Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica