Enn ein og þessi er bústin!

Í undirdjúpum Norðurár. Mynd Heimir Óskarsson. Aðrar mynir eru úr safni Nils Jörgensens.
Við ætlum að láta það eftir okkur að leika okkur dálítið meira með nýja túpukerfið hans Nils Jörgensen og skjóta inn einni girnilegri túpunni til viðbótar. Hún er bústnari en þær fyrri, en ekki síður veiðileg.

Þessi fluga, sem heitir Pet Blue, fylgir reglu Jörgensens um einfaldleikann sem er svo oft hvað veiðnastur. En eins og lesendur geta séð, þá er þessi fluga þó talsvert bústnari og efnismeiri heldur en tvær þær fyrri sem við birtum hérna. Menn geta rétt ímyndað sér hvernig þessi pakki skilar sér í árvatninu. Upplagt að þessi þreyti frumraun sína hjá hnýturum í vorbirtingsveiðinni, en Jörgensen er sjálfur búinn að margreyna hana að veiðni og gæðum í íslenskum ám. Það er sem sagt mælt með henni.
Hér er fyrst efnislistinn:
Vængur: Kanínu Zonker
Búkur: Svart döbb og silfurvaf.
Flass: Silfur.
Túpan sjálf: Glær eða svört Pro Micro Tube
Haus: Pro Disc eða Pro Cone
Augljóslega er hér hægt að leika sér að afbrigðum.

Mynd 1: Byrja á að þræða 6 eða 8 mm Pro Sonic Disc upp á Pro Micro Tube

Mynd 2: Döbba með svörtu og vefja með silfurþræði.

Mynd 3: Aftara hringvaf á sinn stað, blátt plús tvö silfur flass, sitt hvoru megin.

Mynd 4: Vængurinn, kanínu Zonker, betra að hafa hann of langan en of stuttan, það má alltaf klippa hann til eftir þörfum.

Mynd 5: Fremra hringvafið á sinn stað. Blátt að þessu sinni.

Mynd 6: Hausinn. Frumskógarhani í kinnar, síðan Pro Disc og síðan skera eða klippa túpu að framan og aftan. Ljúka með því að smella aftan á rauðan Pro Hook Holder, sbr. efnismyndin efst í greininni.
