votnogveidi_Fors_2009-05
afþreying

Velkomin ...

... í afþreyingu!

1.4.2005

Velkomin. Hér undir eru sex undirflokkar og þeim kann að fjölga í náinni framtíð. Hér verður fyrst og fremst skemmtilesningin og okkur segir svo hugur um að þessi efnisflokkur muni njóta hvað mestra vinsælda utan hins hefðbundna veiðitíma. Nöfn undirflokka lýsa innihaldi þeirra prýðilega þannig að við erum ekkert að bæta þar neinu við.

veiðistaðurinn

Hér munu ýmsir vera kvaddir til að segja frá minnistæðum og athyglisverðum veiðistöðum. Kynnum sínum af þeim, kenjum, kostum og göllum. Þetta verður meira og minna kryddað veiðisögum.

fluguboxið

Rétt að taka það strax fram að þetta er ekki fluguhnýtingarþáttur. Við skyggnumst í flugubox veiðimanna sem tína úr flugur sem hafa einhverja skemmtilega fortíð. Fyrstu flugurnar eru úr boxum ritstjóra þessa vefrits, en gramsað verður í boxum veiðimanna um land allt í náinni framtíð.

veiðisagan

Hér verða tíndar til veiðisögur, langar, stuttar, skrýtnar, fáránlegar.....allar sannar náttúrulega. Nýjar, gamlar. Bara veiðisögur sem við hnjótum um á ferðum okkar um bakka vatnanna og síður bókanna/blaðanna.

gamli tíminn

Hér verður efnið dálítið tvískipt. Annars vegar verða skráðar gamlar frásagnir, birtir kaflar eða kaflabrot úr bókum og blöðum, er lýsa gamla tímanum sem nú er liðinn og kemur aldrei aftur. Hins vegar mun ritstjóri af og til skjóta hér inn gömlum viðtölum við veiðimenn sem sumir eru nú látnir en aðrir komnir vel af léttasta, þar sem þeir segja frá ævintýrum sínum fyrr á tímum. Ritstjóri þessa rits hefur tekið fjölda slíkra viðtala í gegnum árin og verður þeim gefið líf á ný í þessu vefriti.

minnistæðast

Þessi undirflokkur mun ugglaust njóta vinsælda. Hér munu veiðimenn verða teknir tali og þeir beðnir að segja frá því sem var minnistæðast á nýliðinni vertíð og beðnir að spá í spilin fyrir komandi vertíð að auki.

veiðistaðakynning

Þessi undirflokkur er aðallega helgaður silungsveiðistöðum. Lesendur munu jafnt geta lesið hér um vel þekkt veiðisvæði og minna þekkt og verður kannski mestur fengur að því. Staðháttum verður lýst, bestu veiðistöðum, við hverju menn mega búast í afla og aðgengi og hvar nálgast megi veiðileyfi. Það er alveg ljóst að gríðarlega mikið er um vannýtta silungsveiðimöguleika hér á landi og ætlum við með þessum undirflokki að reyna að bæta þar eitthvað úr.


Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica